Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Blaðsíða 14
14
mislöng, og eru oft aukin að lengd hjá sömu þjóðinni, þegar fram
líða stundir, bæði af samgöngum og yiðskiftum við aðrar þjóðir og
af því að ölnin er stutt mál og óhentugt, þegar þarf að mæla lang-
ar voðir, eða því um líkt. Dæmi slíkra álnabreitinga eru deginum
ljósari, bæði bjá oss íslendingum (bin forna öln, stikan, Hamborgar-
alinin, bin danska alin) og bjá öðrum þjóðum. Englendingar hafa
gamalt álnamál, sem nefnist cubit og skiftist eins og hin forna ísl.
alin í 2 spannir (spans)1). Um það segir Murray i orðabók sinni
(undir cubit 2), að það sje »mismunandi á ímsum tímum og stöðum
enn vanalega 18—22 enskir þumlungar«.2) Aður böfum vjer minst
á glundroða þann, sem var á álnamálinu á Þískalandi, áður en
metramál komst þar á. Því verður ekki sagt, að neitt verulegt sje
á móti þvi, að alinin hafi að vísu frá upphafi veríð jafnlöng meðal-
mans öln, enn síðan verið aukin, sem svaraði 2 sentímtr. eða 3/4
þumlungs dansks. Líklegt þikir mjer, að aukning þessi stafi frá
uppbót þeirri eða kaupbæti, sem vant var að gefa, þegar vaðmál
voru mæld, og munum vjer víkja að því síðar.
Aður höfum vjer drepið á þann stað í Heimskringlu og fleiri
Noregskonunga sögum, sem sínir, að einn fótr (eða fet) var talinn
jafn hálfri alin,3) og þá um leið jafn einni spönn. Ef alinin er jöfn
49,143 sentímtr. = 18,79 d. þuml., þá verður fóturinn (fetið) = 24,572
sentímtr. = 9,4 d. þuml. Þetta kemur þó ekki heldur heim við
náttúrlegt mál, því að meðal karlmannsfótur hjerlendra manna er
26,5 sentmtr. = 10,13 d. þl á lengd, eftir því sem greindir skóarar
hafa skírt mjer frá, og ætti alinin eftir því að hafa verið 53 sentí-
metrar eða 20,26 d. þl. Sínir þetta eitt með öðru, að náttúrleg mál
er ekki mikið að marka, þegar finna skal lengd hinnar fornu álnar,
þó að sjálfsagt sje að hafa þau til hliðsjónar.
Hvergi er þess beinlínis getið í fornum ritum, hve margir
þumlungar hafi verið í fornri alin, þvi að staðurinn í Búalögum
hinum prentuðu, sem telur 20 þumlunga í alin, er eflaust ekki gam-
all. Enn þó er það fieira enn eitt, sem bendir til, að forníslenskri
alin hafi verið skift í 24 þumlunga.
Grágás skírir frá því á einum stað, hvernig menn mældu
þumlungum. I Kb. II 193. bls. standa þessi orð: Þat er katlamáls-
‘) C. Hage, Haudbog i handelvidenskal) 438. bls.
2) Fornrómversk alin (cubitus) var ekki lengri enn 44,4 sentimtr. (tæpir 17
þuml. danskir), forngrisk alin (iríWus) bjer um bil 2 sentímetrum lengri (46,2 sentí-
metrar), egipsk alin þeirra lengst (52,4 sentimtr.).
3) Hkr. (F. J.) Har. liarðr. 91. k. (III 205. bls.) Morkinsk. 117. bls. Fagrsk,
útg. F. J. 58. k. 289. bls. Fms. VI 415. bls. Flat. III 394. blg.