Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 29
29 getað gjört í venjulegum vatnavöxtum. Hlaup þessi hafa eyði- lagt hinn forna gróður í hrauninu, ef til vill oftar en einu sinni. Auk þess hefir stundum drifið þar yfir vikur og eldfjallaösku. Nú er ekki annar gróður í hrauninu en lítt þroskaður nýgræðingur. Hann er minstur vestantil, þar sem hraunið er lægst á stóru svæði og árburður svo mikill kominn í það, að varla standa upp úr nema stórir klettar. Og þegar neðar dregur, nær Lundi, sést hvergi á klett upp úr árburðinum á stóru svæði, og er það áður tekið fram. Mun mega telja meðal bæjarleið frá Lundi að næsta horni hrauns- ins, því er nú sést. Þó hlaupin hafi ekki farið yfir hólinn, sem Lundur stóð á, er nú allur jarðvegur burt af honum, nema að vestan- verðu. Landnyrðingar eru mjög sterkir á þessu svæði, þeir hafa tekið við þar, sem landbrot af vötnum hætti, og blásið jarðveginn burt. Hóllinn, sem Lundur stóð á, hefir þó til þessa verið til skjóls fyrir mjóa grastorfu, sem liggur frá útsuðurenda hans fram að Djúpá. Lengd þeirrar torfu er hér um bil 150 fðm ; en hvergi er hún breið- ari en 10 fðm. og sumstaðar mjórri, svo nærri má geta, að dagar hennar muni bráðum taldir. Bærinn Lundur hefir staðið á noið- austanverðum hólnum. Þar liggur byggingargrjótið í dreifum. Und- irstöður veggja eru alveg gengnar úr lagi, svo að húsaskípun er ekki hægt að ákveða. Þó sést löng, bogadregin steinaröð suðaustan- megin við norðausturenda hinnar mjóu grastorfu. — hún nær dálítið upp á suðurenda hólsins. Hygg eg að sú steinaröð sé kirkjugarðsundirstaðan suðaustanmegin. Var mér og sagt, að þar hefði áður blásið upp mannabein og verið flutt að Kálfafelli. Eftir því kynni kirkjutóftin, eða nokkuð af henni, að vera enn óupp- blásin í norðausturenda grastorfunnar. Þar er hóllinn brattur vestan- megin og farvegur eftir leysingarvatn neðanundir. Þar getur grjót úr kirkjugarði og jafnvel úr kirkju hafa hrunið ofan og borist burtu eða hulist. Því eigi þykir mér ólíklegt, að þar hafi hóllinn áður verið breiðari og flatari, en vatnsþungi, sem á sínum tíma hefir skollið þar á honum, hafi mulið meira eða minna af honum. Með því að bæjarrústin er fyrir löngu örblásin, og með því að eigi er þó sórlega sjaldgæft að menn komi þar, t. a. m. smalamenn frá Rauðabergi, þá var auðvitað til lítils að leita þar að forngrip- um. Þó gjörðum við það. (Jón Steingrímsson frá Rauðabergi var með mér). Og við fundum 3 smáhluti: lítið tálguhnífsblað, odd- brotið; hnit (oddró) úr eiri, er trégjörð (á íláti) hefir verið lokað með; og enn óþéktan smáhlut úr eiri, er eg hygg ef til vill bréfalclemmu. Um sóknarbæi Lundarkirkju vita menn lítið. Þeir eru, eins og vísan segir, »huldir aur og grjóti«, allir nema einn. Rúst þess
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.