Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 32

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 32
32 með sér, að foksandi. Þar kom að Efsti-Bakki lagðist í eyði og Miðbakki líka. AltaE jókst sandurinn og Hólá næstum stífiaðist. Braut yatnið sér þá veg vestur í Þjórsá. Syðsti-Bakki stóðst enn, og auðugur maður er nefndur þar síðast Hafliði »ríki«, er var móður- faðir Þorleifs ríka á Háeyri. Eftir hans dag fór Syðsti-Bakki líka í eyði, og það sem eftir var af landinu lagðist til Bakka, sem bygður hafði verið upp úr Efsta- og Mið-Bakka. Það sem hér kemur máli við, er sögnin um að Djúpárbakki, sem Njála nefnir, hafi verið hér. Eg get ekki neitað því, að mér þykir sú sögn sennileg. Það er ekkert óviðfeldið eða óeðlilegt í því, að hugsa sér konuna, — sem var búskörungur og viidi ekki missa sjónar af heimili sínu, — sitjandi úti í Þykkvabæ, en bóndann á Bergþórshvoli. Þau voru saman þegar vildi fyrir því. Og hugsanlegt er, að þeir Grímur og Helgi hafi komið frá Djúpárbakka brennukvöldið, er sagan lætur þá koma frá Hólum (eða Álfhólum?), því um Hóla hefðu þeir þá átt leið. Það gerir nú ekkert til. Satt er það, að jafnvel þótt Djúpárbakki sá, er Kjáía nefnir, hafi verið í Þykkvabæ, þá gat bær með sama nafni verið austur í Fljóts- hverfi fyrir því. Það gat verið Maríubakki. Og eins vel gat sá bær verið á nyrðri bakka Djúpár, þó nú sjáist ekkert til hans. En svo langt frá Djúpá, sem Rof'hólsrústin er, sé eg ekki, að bœr með því nafni hafi getað verið. Eigi að geta sannfærst um það, þarf eg að fá sterkari rökremdir en mér eru kunnar sem komið er. Lundarkirkja var helmingakirkja móti Kálfafelli. Þar af má sjá, að i Lundarsókn hafa verið fleiri bæir enn einn eða tveir. Aðalsvæðið, sem sóknin gat náð yfir, heíir verið frammi á láglend- inu austur og suðaustur frá Lundi. Þar, en varla annarsstaðar, hefir verið nægilegt svæði handa fleiri bæjum. En þar hafa Núps- vötnin seinna »hulið alt í aur og grjóti«, eins og vísan segir. Þau liggja nú yfir mestöllu því svæði og færa sig smámsaman norðvest- urávið. Góður spölur er þó enn ofan til þeirra frá Lundi, og bæði þar og frá mýrinni er nægur vatnshalli. Þau hafa ekki grandað Lundi. Það hefir Djúpá gert. Og vindurinn hefir hjálpað henni til þess. Þá sögn heyrði eg, að einhversstaðar þar, sem Núpsvötn renna nú, og helzt nokkuð ofarlega á því svæði, hefði bær verið, er Fagri- skógur hefði heitið. En líklega hefir sá bær þó verið í Lómagnúps- sókn, en ekki Lundar. Um það er enga vissu hægt að fá, heldur en um svo margt annað, sem hér að lýtur. Nöfnin Skógarhraun og Fagriskógur benda á, að hér hafi land verið skógi vaxið. Ef til vill hefir stórbýli á þessu svæði heitið: í Skógum og Skógahverfi verið kent þar við.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.