Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 37

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 37
37 eð Lndn. segir að Sturla goði byggi »á Sturlustöðum uppi undir Tungufelli upp frá Skáldskelmisdal«, þá vai’ð að taka það til greina. Nú er enginn dalur nærri heimatungu-fellinu- Því komst það ekki að. En alt stóð heima ef eg tók sundið, sera Hallmundarhrauns- kvísiin líggur fram um, fyrir Skáldskelmisdal, og Kleppa, sem nú heita, fyrir Tungufell. Það fell er líka í tungu, og er bærinn Fljóts- tunga utar í þeirri tungu. Þó ekki eigi sem bezt við að kalla þar »dal«, þá má segja sama uin fleiri »dali«, svo sem Kaldadal o. fl. Og nú er það upplýst (af M. Þ.) að hellirinn Víðgeimir í þeirri hraunkvísl hét fyrrum Víðgelmir, þá kemur mér í hug, að enn fyrri hafi hann ef til vill, verið kallaður Skáldsgelmir — af einhverju til- efni, svo sem að skáld hafi hafst þar við um hríð, og dalurinn svo kendur við hellinn. Sé nú þetta rétt tilgetið: að Víðgelmir hafi áður heitið Skáldsgelmir, þá liggur mjög nærri að hugsa sér, að heimildarmaður söguritara hafi nefnt fyrir honum Skáldsgelmisdal, en hann eigi þekt örnefnið og ritað Skáldskelmisdal. Þar munar ekki nema um einn staf og framburðurinn alveg eins hvor stafurinn sem er. — Og af því datt mér þessi tilgáta'í hug. Sturla goði Kalmansson er óefað sami maður og Sturla goði, sem var að vígi Hellismanna með Illuga svarta og Torfa Valbrands- syni. Þegar þessa er gætt, þá verður skiljanlegt að hann hafi sett bygð sína svo innarlega, til þess að vera á varðbergi fyrir óaldar- mönnunum og halda njósn um háttu þeirra og hvenær færi gæfist á þeim. Allir kannást við þjóðsöguna um Hellismenn, er segir, að þeir hafi orðið unnir með þeitn hætti, að bóndasonurinn frá Kalmans- tungu hafi svikið þá. Er nú ekki hugsanlegt, að í þessu felist end- urminning um forna sögu af Sturla goða, er lagt hafi ráðin á til að sigra Hellismenn eftir að hann hafði kynt sér atferli þeirra? Þetta mál væri æskilegt að betur yrði rannsakað. VIII. Keldur í Bæjarsveit. í Víga-Styrssögu-ágripi Jóns Grunnvíkings k. 12. er þess getið, að þá er þeir Snorri goði fóru frá vígum þeirra Þorsteins Gíslason- ar í Bæ, þá hafi þeir lýst vígunum á »næsta bæ«, riðið svo upp með ánni, yfir i Hvítársíðu og upp frá bæjum. Það var hyggilegt, sem von var af Snorra, að ríða á fjall fyrir ofan Hvítársíðu; þangað mundi ekki leitað, þó eftír væri riðið. En þeir þurftu að vera komnir upp frá bæjum áður enn fólk kom á fætur. Hafa þeir því riðið hið beinasta til Hvítár og upp með henni til brúar. Hinn »næsti bær«, þar sem þeir lýstu vígunum, heflr ekki mátt vera langt úr leið fyrir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.