Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 43

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 43
43 austan á. Ekki er langt á milli: austurtúnið í Gröf og áin. En örnefnið Hofin eru á sjálfum árbakkanum gagnvart Gröf, og þar fast við liggur gatan upp frá ánni, þá er sem beinast er farið frá Gröf að Grafarbakka. í Gröf er láglent, en á Grafarbakka er hálent og og árbakkinn brattur þeim megin. Hafi hofið staðið þar, sem örnefnið er, þá var einkar fagurt að sjá upp þangað að morgni dags, ef komið var austur fyrir bæinn í Gröf um sólaruppkomu. Það gat haft mikla þýðingu fyrir trúmann í fornum sið. Og trúmaður er líklegt að Þorsteinn hafi verið, þar eð hann var goði og hafði helgistörf á hendi. Því hefir hann líka átt hof. En ekert örnefni þar nærlendis er kent við hof, nema þetta eina. Ekkert er samt einkennilegt við staðinn: Það er dálítill bali, gjör af náttúrunni, — eða, ekki lítur út fyrir annað. Raunar er það ekki alveg að marka, því á þessum bala hafa peningshús staðið frá ómunatíð. Þar geta því mannaverk verið eyði- lögð, og er hæpið með árangur, þó reynt væri að grafa balann út. XIV. Athugasemd um Þórsmörk. í Árbók Fornleifafélags-ns 1907, bls. 22, hefi eg getið þess, að þá er eg fór um Þórsmörk 1906 kom eg ekki í Sóttarhelli, en iðrað- ist þess, er eg kom aftur út i Fljótshlíðina, þvi þar hitti eg mann, er komið hafði í hellinn og lýsti honum svo, að útaf lýsing hans datt mér í hug, að með þenna helli kynni að vera líkt ákomið og hellana undir Eyjafjöllum, sem eg hafði skrifað um í Árb. '02, bls. 24—29. í það sinn gat eg samt ekki snúið aftur inn á Mörk til að fullvissa mig um þetta. En sumarið 1908 fékk eg tækifæri til að fara þangað og fann mér skylt að nota það. Ekki reyndist svo, að Sóttarhellir væri líkur Seljalandshellum, Rauðafellshellum eða Rútshelli. Sóttarhellir er óbreytt náttúrusmíði, holaður af sjó inn í þursabergið meðan sjávarfiötur stóðhærraenn nú á þeim svæðum. Ræfur hellisins er ójafnt og óreglulegt og hefir hvergi verið lagað af mönnum. Inn úr enda hans er að vísu hola eða hvolf> eins og mér var sagt; en þar eru ekki heldur nein mannaverk á. Satt er það og, að tvö berghöld eru þar, hvort gagnvart öðru þannig að götin standast á. En bæði eru þau á sömu (eystri) hlið hellisins og svo sem rúm alin milli þeirra. Ólík eru þau berghöldunum í Rútshelli og Rauðafellshelli, sem eru svo snildarlega höggvin inn í slétt hellisræfrið; í Sóttarhelli eru þau þar á mót boruð gegnum tvær sjálfgjörðar bergbríkur ofurlitlar, sem ganga inn úr ræfri hans. Götin eru auðsjáanlega af mönnum gjör. En svo eru þau gömul, að eigi gat eg séð að bergið hefði annan lit innaní þeim enn annarstaðar. 6*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.