Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 54
54
stundum átti sér stað. — MANN í 3. 1. sbr. Garðast. nr. 1 (Árb.
'04, 39.
Hversu mikið vantar neðan af steininum er óvíst; að líkindum
heíir í næstu línu staðið A= eða ANNO og svo ártalið á eftir; síðan
hefir ef til vill staðið ritningargrein. Enda þótt ártalið vanti og
ókunnugt sé um Arnór þennan, er það ekkert vafamál, að steinninn
er frá 17. öldinni, og að líkindum er hann frá fyrri hluta hennar.
Áletrunin hljóðar þá þannig:
n(Hjer (under) hvíler sd) guðhrœdde mann Arnor Jonss[on]j í guðe
slna hjervist endaðe 25. ap[rilis] a 64. á[rej s[íns] a[lldurs] (anno 16..).
Legsteinar i Kálfatjarnar-kirkjugarði.
Rannsakaðir og skrásettir 26. VIII. 1908.
í Kálfatjarnar-kirkjugarði eru sjáanlegir 3 legsteinar frá
17. öld. Allir eru þeir úr grágrýti og vafalaust að öllu leyti
íslenzkir. Hinn elzti þeirra (st. nr. 1) er frábrugðinn hin-
um báðum, bæði að efni og öllu verki; grágrýtið í honum er
gljúpara (»hraungrýti«), og leturgerð, áletrun og allur frágangur
ófegurri og einfaldari. Þeir munu því alls ekki vera allir gerðir af
sama manni, en tveir þeirra (nr. 2 og 3) geta verksins vegna, sem
á þeim er, vel verið eftir sama manninn, þótt 22 ár hafi liðið milli
þess að þeir menn önduðust, er steinar þessir hafa verið lagðir yflr.
Nr. 1. Guðmundur Jónasarson(?). ý 1667.
Steinn þessi er fyrir aftan kirkjuna. Hann er ferskeyttur, lengd
92 sm., breidd 40 sm. og þykt um 13 sm. Að neðanverðu er höggv-
inn stallur í röndina umhverfis, svo að hún verður ekki nema 9 sm.
yzt. Letrið er mestmegnis venjulegir latínuleturs-upphafsstafir og
stafhæðin um 5 sm. i línunum, sem eru að eins 3. í hornunum
öllum eru hringar höggnir með einföldu striki og eru þeir 13 sm.
að þvermáli. Að öðru leyti er steinninn skrautlaus, slétt höggvinn.
R er hér táknað með Z í endum allra orðanna í línunum; það er
ofantil við línuna í 3. 1. og táknar það án efa að þar eigi að lesa
-ur. í stað D er haft d. U-hljóð er tákpað með V, í áherzlulaus-
um endingum er -er (ekki -ir).