Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Side 45

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Side 45
GRÖP í ÖRÆPUM 47 J'öðum, sem skiptu húsinu í þrennt eftir endilöngu. Langveggir voru tíðast sveigðir út um miðju. Dyr voru ýmist á langvegg nær öðrum enda eða á miðjum gaflinum, venjulega voru aðeins einar dyr á húsinu, en stundum þó fleiri. Oft var langhúsinu skipt með þver- veggjum, ýmist úr tré, torfi eða grjóti, í fleiri herbergi, en sjaldan eða aldrei voru tvö eða fleiri hús byggð saman hlið við hlið, þannig að innangengt væri á milli. Eldstæði var tíðast á miðju gólfi, oftast langeldur, stundum nær öðrum gaflinum. Oft var fjós í öðrum enda hússins og einkum hefur það orðið ofan á á Skotlandseyjum, en á Norðurlöndum virðist það hafa verið enn tíðara fyrir víkinga- öid3 4). Fjós, hlaða, búr og smiðja kann að hafa verið til allvíða, en lítið er vitað um það, en t. d. á Jarlshof á Hjaltlandi voru þetta sjálfstæð hús, dreifð um nágrenni langhússins10). Árið 1939 gróf Márten Stenberger upp húsarústir þar sem heita Snjáleifartóftir í landi Haga í Þjórsárdal10). Er trúlegt að þar hafi verið byggt þegar á landnámsöld og ef til vill að bærinn Hagi hafi upphaflega staðið þar, og þess má geta að næsti lækur fyrir innan rústina, enn fjær þeim bæ, sem nú heitir Hagi, nefnist Hagalækur. Undir öðrum rústum á staðnum var tóft, 16,25 m löng og 5,5 m breið um miðju, en lítið eitt mjórri til endanna. Einar dyr voru á syðri langvegg vestarlega og á miðju gólfi mjög stór langeldur. Er hús þetta að öllu eins og vænta má að hús landnámsmanns væri, og er ekkert því til fyrirstöðu, að þetta sé bær Þorbjamar laxa- karls eða frá fyrstu áratugum 10. aldar. Árið 1939 gróf Aage Roussell upp bæjarrústir fyrir vestan Ás- ólfsstaði, þar sem heitir Skallakot17). Aðalhúsið á þeim bæ hefur verið langhús, svipað því í Snjáleifartóftum, en miklu stærra. Tvenn- ar dyr eru á suðurhlið hússins, og á norðurhlið nærri austurenda liggja dyr inn í bakhús, og virtust húsin vera þrjú saman og gengið úr einu húsi í annað, en notkun húsanna og raunar öll skipan þeirra var mjög óljós og torræð, en það húsið sem næst var skálanum virtist vera búr. Roussell telur líklegt, að þessi hús hafi verið byggð við langhúsið, eftir að það var fullgert, og ræður það af frágangi bakdyranna, sem liggja inn í búrið. 1 einu gólfinu var renna, sem endaði annars vegar (neðri endi) í lítilli þró, að því er virðist innan húss, en um hinn endann var óljóst. Undir skálanum eru einhverjar byggingarleifar, en þær voru mjög lítið rannsakaðar. 50 sm fyrir ofan gólfið í langhúsinu var hvíta öskulagið frá 1104. Þegar sú aska féll, hefur tóftin verið algróin og veggir hafa aðeins sézt sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.