Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 131
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERL.ENDUM SÖFNUM
133
1. 29.118:17. Askur úr furu. Venjulegt lag. Fremst á lokinu
er tota með tungum við brúnir. H. 15,3 (þar sem uppistaða rís
hæst). Br. (með handarhöldum) 24,6. Þvm. um botn um 17.
2. Gjögtir dálítið um samskeyti og lokið talsvert máð. Ómálaður.
3. Handarhöldin eru lítið eitt tilsniðin, og á því stærra eru
nokkrar kílstungur og ristir krossar. Útskurður á lokinu. Kílskurð-
arraðir í reitunum við handarhöldin. Að öðru leyti jurtaskreyti.
Samhverft stönglamunstur, flatt upphleypt. (Skorið er býsna djúpt
niður milli stönglanna sums staðar.) Upphaf stönglanna er við
reitinn hjá stærra handarhaldi (uppistöðu). Breidd stöngla allt
að 1,5 sm. Enda með uppundningum. Innri útlínur. Engin þver-
bönd. Yzt (innan hringlínu, sem takmarkar reitinn) er fyllt upp
með smáum þríhyrningum með kílstungu í. Þetta á ef til vill að
skilja sem blöð. Ferhyrning á miðlínu nær totu á ef til vill að
skilja sem blóm. Á honum eru innsveigðar hliðar og dálítil skora
í hvei'ja. — Ekki nákvæmt eða vandlega dregið.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
6. Safnsk.: Dr. Hans Kuhn (23). — — — frá Garði, hinn
13. júlí [1929].
7. -----— útskurður af þessu tagi virðist hafa verið algengur
á asklokum á Norðurlandi.
TRAFAKEFLI
1. 33.67:1. Trafakefli úr birki. Dýrshöfuð á öðrum enda, upp-
undið handfang á hinum; annars er keflið þrír „teningar“ sem
tvær brýr á lofti tengja saman, fremur flatar með sneiddum brún-
um eins og teningarnir sjálfir. L. 60,5. Br. 6,2. H. 6.
2. Nokkuð slitið og molnað öðrum megin. Ómálað.
3. Alþakið útskurði nema neðan á. Dýrshöfuðið: Nasir, sýnileg
tunga, sporöskj ulaga augu og samhverft skorumunstur milli augna
og nasa. Eyru með oddalínum á milli, mörg samhliða strik og skor-
ur á hliðum og neðan á. Á fremra handfangi liggja samhliða strik
að endilöngu og bekkir með röðum af skásettum ferhyrningum,
kross með kílskurði og þrír skornir bókstafir neðan á. Á tening-
unum tveimur til beggja enda eru bandhnútar ofan á, en jurta-
skreyti, yfirleitt fremur köntótt, á skáflötunum. Á hliðum aftasta