Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 26
28
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Um þetta leyti er jafnvel farið að sneyðast um eik í Noregi, enda
er um 1550 harðbannað þar í landi að selja útlendingum eik.1
Þess þarf naumast að geta, að eik hefur aldrei vaxið á íslandi né
annar viður, sem liaffær skip yrðu smíðuð úr.
Um það leyti, sem einhver Breiðfirðingur er að setja saman
Króka-Refs sögu, er engin sigling til Islands og svo vínlaust, að
leggja varð niður messusöng.2 En höfundur ornar sér við gömul
minni. Hann lætur Ref smíða haffæran byrðing í Haga.3
Sennilega hefur það hent tvö ár í tíð skrásetjara Egils sögu, að
ekkert skip kæmi til Islands, og þriðja árið var „farsumar hart“,
eins og það er orðað, en þetta var á tímabilinu 1187—1219.4 Allmjög
stingur þessi reynsla skrásetjarans í stúf við frásögn Egils sögu,
því að á tímum Egils var mikil sigling til íslands, og þá áttu kaup-
skip að hafa víða uppsátur í ám, lækjarósum og síkjum.5
Dæmin, sem hér hefur verið vikið að, eru úr æði mismunandi
gildisríkum heimildarritum, en eigi að síður er ekki úr vegi að hafa
mið af þeim, þegar grennslazt er eftir því, hvort íslenzk fornrit geti
veitt bendingu um, hvers konar skip voru í landnámsflotanum til
Grænlands 986.
IV.
Þótt oft megi fara nærri um, hvað er skáldskapur í íslendinga-
sögum, rekumst vér þar þó á býsna margt, sem mjög erfitt er að
átta sig á, hvort heldur er tilbúningur eða raunvera. 1 Sturlunga
sögu er þessi frásögn: — „Vestfirðingar brugðu við skjótt og gerðu
svo mikið afrek, að þeir fluttu stórskip yfir þær heiðar, er varla
þótti lausum mönnum fært“.° Vegna þess að frá atburðinum er
greint í Sturlungu, verða ef til vill færri til þess að rengja, að hann
hafi átt sér stað, heldur en ef frásögnin af honum hefði verið í
Eiríks sögu eða Þorskfirðinga sögu. En nú vill svo til, að vér höfum
óyggjandi spurnir af því, að á síðustu öld fluttu Breiðfirðingar ver-
1 Knut Weibust: Bátane i Hordaland. Fiskarsoga i Hordaland, bls. 475.
2 Skálholtsannáll 1326, Isl. Annaler indtil 1578, bls. 205.
3 ísl. fornrit XIV, bls. 128.
4 Gottskálksannáll 1187, Konungsannáll 1209 og 1219, Isl. Annaler, bls. 324, 123, 125.
5 Isl. fornrit II, bls. 97.
0 Sturl. II, bls. 229.