Norðurljósið - 01.01.1981, Page 6

Norðurljósið - 01.01.1981, Page 6
6 Tíminn í Alaska olli þáttaskilum í andlegu lííi Bruce. A bænastund í herbergi sínu fylltist hann heilögum Anda. Yfir hann streymdu straumar gleði og máttar. Fylltur þessari nýju djörfungu hljóp hann inn til varðmannanna á aðalstöðvunum. Ekki gátu þeir skilið vel, hvaðan Bruce fékk þessa djörfungu. Hér kom sonur týnda flugmannsins, fylltur hamingju og öryggi. Þeir höfðu búist við hinu gagnstæða. En Betty, móðir hans, Kathy systir hans og vinur þeirra Henry vissu, að Guð gerir kraftaverk. Bjargað. Segja má langa sögu með fáum orðum. Mánudag- inn 15. maí, er flestir höfðu misst alla von um, að Junvik fyndist, þá gerðist það. Henry Hansen réði tvo unga þyrlu-flugmenn. En það var alveg á móti óskum björgunarstarfsmanna. Aðra var ekki að fá. Henry hafði dregið hring á landabréfið og sagt: „Hér skuluð þið leita, piltar. Drottinn hefur sagt mér það.“ Flugmennirnir tveir lögðu af stað í fyrstu leitar- ferð sína. Dálítið voru þeir undrandi. Leit eftir leið- beiningum Guðs var þeim eitthvað nýtt. I flugmanns- klefanum var Bengt Junvik á bæn til Drottins. „Drottinn, ég veit, að þú kennir mér þolinmæði. En ég held, að ég sé byrjaður að læra námskaflann núna.“ Samstundis heyrir hann vélarhljóð í þyrlu. Hann gekk út á flugvélarvænginn. Sér til mikillar undrunar sér hann, að þyrlan er að setjast rétt hjá honum. Þar með var honum bjargað eftir 13 dægur. Nytsamir lærdómar. Er þetta var allt um gafð gengið, var ekki annað unnt en að kannast viðyað kraftaverk höfðu gerst. Það var kraftaverk, að óreyndir flugmenn gátu fundið flugvélina týndu eftir nokkurra stunda leit, er þaul- reyndir flugmenn höfðu ekki fundið hana á 13 dægr- um. Sá styrkur, sem Junvik og fjölskyldu hans var gefinn, var líka kraftaverk. „Aldrei áður hef ég fengið að reyna eins nálægð Guðs og á þessum tíma.“ Þannig mælti flugmaður- inn, er frelsaður hafði verið svo giftusamlega. „Nú veit ég, að Guð gefur þann kraft, sem við þörfnumst, í hvaða kringumstæðum sem við erum. Við báðum. Guð heyrði bænir okkar. Eg lærði líka annað, meðan ég var í flugvélarflakinu. Það er svo margt, sem við sjáum, að hefur ekkert gildi, er við rannsökum líf okkar. Við sækjumst eftir svo mörgu, sem við erum ekki í þörf fyrir. Guð hefur kennt mér eitthvað, sem varir ævi- langt!“ „O, miklið Drottin ásamt mér“ „Ég vil vegsama Drottin alla tima, ætíð sé lof hans mér í munni. Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna. Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sam- einingu nafn hans.“ (Sálm. 34. 2.-4.) Drottinn læknaði mig sem með kraftaverki af ban- vænu krabbameini. Síðan eru liðin meira en níu ár. Eg hét honum því, að ég skyldi segja fólki Guðs frá því, hvað hann hafði gjört fyrir mig. Við, María mín og ég, trúum því, að lífi mínu hafi þá verið þyrmt, af því að fólk, víðs vegar um heiminn, var að biðja um það. Eg vegsama Drottin, að hann gaf mér önnur níu ár í þjónustu sinni. (Með predikun sinni egndi þessi predikari Satan upp á móti sér. Guð leyfði það, að hann gat gert þjóni Drottins ýmsar skráveifur. Heldur nú sagan áfram.) Fyrst af öllu, segir hann, braut ég á mér vinstri höndina. Skömmu síðar var það eftir guðsþjónustu, að læknir sagði við mig, er hann tók í hönd mér: „Þú ert með mikinn hita. Þér væri betra að fara í rúmið.“ Daginn þann fór ég heim með lungnabólgu. Fáum vikum síðar losnaði brjóskflaga í baki mér, og var ég í drætti (teygingum) um tíma. Hámarkið náðist nokkrum mánuðum síðar. Þá var ég kominn með krabbamein, innan vissra takmarka. Um jólin varð ég var við kjálkabólgu, sem ég hélt, að væri útfrá tönn. Læknirinn lét mig fá lyf, en dró ekki tönnina úr mér. Síðar meir, er hann heyrði, hvaðgekk að mér, sagði hann: „Eg veit ekki, hvers vegna ég dró ekki tönnina úr þér. í 95 tilfellum af 100 hefði ég gert það. Ég gæti hafa drepið þig með því.“ Við María vissum auðvitað, hvers vegna hann tók ekki tönnina. Viö eigum Frelsara, sem ekki einungis umvefur okkur náð sinni, heldur tekur árásir djöfulsins, víkur þeim til hliðar og færir nafni sínu dýrð. Er skurðlæknirinn hafði komið heim á prestssetrið til að segja okkur, hver árangurinn væri af rannsókn- inni á sýnishorninu, höfðum við skilið, að eitthvað mikið væri að. Skurðlæknar fara ekki heim til sjúklinga venjulega. Er læknirinn hafði skýrt frá, hver sjúkdómurinn væri: staðbundið krabbamein, sótti dálítill efi og ótti á huga minn, er snerti Maríu og börnin. A prestssetri safnaðarins áttum við heima. Þar sem ég hafði fengið magasár, meðan ég var í skóla, var tíu þúsund dollara líftrygging hið eina, sem ég hafði getað eignast. Eins og konan mín benti á, gat Guð litið betur eftir þeim en ég. (Þýtt úr Livets Gang, febr. 1979. S. G. J.)

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.