Norðurljósið - 01.01.1981, Blaðsíða 13
NORÐURL J ÓSIÐ
13
Hvers vegna kemur
Kristur aftur?
Eftir dr. Billy Graham.
Verður heimurinn til á morgun? Hvenær kemur Jesús
Kristur? Endurkoma Jesú Krists, hún er nefnd aftur
og aftur í nýja testamentinu. (318 sinnum segir dr.
Torrey.) Heilagur Andi stjómaði ritun biblíunnar.
Þetta sýnir, hve geysimikla áherslu hann leggur á
þessa kenningu, að Drottinn Jesús kemur aftur til
jarðarinnar. Fimm ástæður eru fyrir því.
Hin fyrsta er sú, að hann verður að koma aftur, til
þess að rætist fyrirheit gamla testamentisins, er ekki
hafa rætst ennþá. Tugir spádóma rættust, sem lutu að
fyrri komu hans. En sumir em óuppfylltir ennþá.
Biblían segir, t.d.: „Því að bam er oss fætt, sonur er
oss gefinn; á hans herðum skal höfðingjadómurinn
hvíla. Hann mun nefndur Undursamlegur, Ráðgjafi,
hinn Máttugi Guð, eilífur Faðir, Friðarhöfðingi.“
(Jes. 9.6. Þetta er rétta þýðingin á þessari ritningar-
grein. S.G.J.) Mikill skal friðurinn verða og höfð-
ingjadómurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í
konungsríki hans, til þess að reisa það og efla með
réttlæti héðan í frá og að eilífu.“ (Jes. 9.6.,7.)
Ritningargreinin þessi hefur ennþá ekki rætst.
Barnið fæddist. Sonurinn var gefinn. En höfðingja-
dómurinn hvílir ekki enn á herðum hans. Hann færði
ekki heiminum frið og réttlæti, er hann kom hið fyrra
sinn. En hvort tveggja mun hann veita honum, er
' hann kemur í annað sinn. „Margar þjóðir munu búast
til ferðar og segja: ,Förum upp á fjall Drottins og til
húss Jakobs Guðs, svo að hann kenni oss sína vegu og
.vér megum ganga á hans stigum, því að frá Zíon mun
kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem.
Og hann mun dæma meðal margra þjóða og skera úr
málum voldugra þjóða langt í burtu. Og þær munu
smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr
spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri
þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.“
(Míka 4.2.-4.) Eg trúi því, að þessi ritningargrein
verði uppfyllt.
I öðru lagi, Kristur verður að koma aftur vegna
þess, er hann sjálfur hefur sagt. Hann er ekki lygari!
„Því að eins og eldingin gengur út frá austri og sést allt
til vesturs, þannig mun verða koma manns-sonarins.“
(Matt. 24.27.) Ennfremur segir í Matt. 25.31.,32.:
„Þegar manns-sonurinn kemur í dýrð sinni og allir
englarnir með honum, þá mun hann setjast í hásæti
dýrðar sinnar, og allar þjóðirnar munu safnast saman
frammi fyrir honum.“ Eg trúi því, að ritningargrein
þessi verði uppfyllt.
Ástæðan þriðja fyrir því, að Kristur hlýtur að
koma, er núverandi staða Satans. Hann er kallaður
„guð þessarar aldar.“ (2. Kor. 4.4.) Þetta merkir, að
hann stjórnar öllum falstrúarbrögðum, röngum
heimspekikenningum heimsins. Biblían segir, að
núverandi skipulag heimsins sé undir valdi hins vonda
Mennirnir geta aldrei bundið hann. Kirkjan getur
ekki steypt honum úr hásæti hans. Löggjöfin er magn-
vana. Ekki vita Sameinuðu þjóðirnar, hvemig á að fást
við hann. Margsinnis skilja þær ekki, að þær em að
fást við andlegt vald, geysilegan kraft hins illa í
heiminum nú á dögum.“
En til er Hann, sem máttugri er, Hann, er sigraði
djöfulinn fyrir (nálega) tvö þúsund árum. Djöfullinn
vissi, að Kristur var að bera syndir alls heimsins, er
hann dó á krossinum. Frá krossinum var Guð að segja
við manninn: „Ég elska þig. Mig langar til að fyrirgefa
þér allar syndir þínar. Mig langar til að taka þig til
himins.“ Hefði Jesús stigið niður frá krossinum,
gætum við ekki frelsast. Við gætum ekki komist til
himins. Við krossinn beið Satansinnstærstaósigurog
við upprisu Krists.
En djöfullinn gengur ennþá laus. Allt, sem illt er í
heiminum, er ennþá í umsjá hans. í öllu, sem er
ranglæti, hefur djöfullinn hönd í bagga og í styrjöld-
um heimsins, einnig í glæpum, spillingu, öllu hinu
hræðilega, sem fram fer. Þess vegna verður Kristur að
koma. Hann er hinn eini, sem getur fengist við Satan.
Réttvísi.
í fjórða lagi, Kristur verður að koma vegna þess,
er fram fer í heiminum. Heimurinn er hrjáður af
sársauka, þjáningum, hungri, styrjöldum, morðum,
lostagirnd, hatri, svikum, táldrægni, spillingu.
Heimurinn verður meir ósjálfbjarga, vonlausara um
hann, eftir því sem vér komumst lengra í háþróaðri
tækni: Ritningin segir: „Verið hughraustir, óttist eigi!
Sjá, hér er Guð yðar! Hefndin kemur, endurgjald frá
Guði. Hann kemur sjálfur og frelsar yður.“ (Jes.
35.3,4.) Jesús Kristur kemur til að frelsa oss frá
sjálfum oss. Þeir eru margir, vísindamenn nútímans,
er trúa því, að vér gætum tortýnt sjálfum oss. Vér
getum það! Mannkynið hefur svo mikla orku nú, að
það getur tortýnt sér. En Kristur kemur. Hann mun
stofna konungsríki réttlætis, dýrðar, friðar og réttvísi.
I fimmta lagi, Jesús Kristur verður að koma aftur
vegna fólksins, er dó í trausti á Drottin. Það verður
mikil upprisa. Fólkið mun verða reist upp frá
dauðum! „Síðan munum vér, sem lifum, sem eftir
erum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til
fundar við Drottin í loftinu; og síðan munum vér vera
með Drottni alla tíma.“ (1 Þess. 4.17.) Hvenær mun