Norðurljósið - 01.01.1981, Page 11

Norðurljósið - 01.01.1981, Page 11
NORÐURLJÓSIÐ 11 verður hann hreinn, hæfur fyrir dvöl meðal heilagra, sem dvelja í Ijósi Guðs í himni hans. Hvílíkt efni þakkargerðar! Og hvílíkt efni undrunar og hryggðar fyrir frelsarann, Drottin Jesúm Krist, er endurleyst fólk hans vanrækir að þakka honum hreinsun sína og Föðumum, sem af elsku sinni þyrmdi honum ekki, til þess að hann gæti frelsað þig og mig! Bænarlífíð er nátengt þakkargjörð. „Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni ásamt þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.“ (Fil. 4., 6. og 7.) Hryggjum ekki Drottin með vanrækslu á þakkargjörð. Fyrir hvað eigum vér að þakka? 1. Fyrir Jesúm Krist. Það gerðu þau, Símeon og Anna, sem vér lesum um í guðspjalli Lúkasar, 2. kafla, 25.-32. grein. 2. Syndafyrirgefningu. Sálmur 103 í biblíunni sýnir það 1.-3. grein. Lesendur eru beðnir að fletta sjálfir upp tilvitnuðum greinum, sem ekki eru birtar hér. 3. Fyrir lækningu, sem er veitt vegna bænar um hana. Sálm. 103.3. 4. Fyrir sigur Jesú Krists yfir synd, dauða og gröf. 1. Kor. 15.57. 5. Fyrir að vera endurfæddir til lifandi vonar. 1. Pét. 1.3. 6. Fyrir hlutdeild í arfleifð' heilagra í ljósinu. Kól. 1.2. 7. Fyrir huggun í þrengingum vorum. 2. Kor. 1.3.,4. 8. Fyrir bænasvar. Jóh. 11.41. 9. Fyrir visku og mátt. Daníel 2.23. 10. Fyrir að gjöra oss fær um að þjóna Guði. 1. Tím. 1. 12. 11. Fyrir fæðuna, sem vér neytum. Jóh. 6.23. 12. Fyrir samfélag við trúað fólk. Post. 28.15. 13. Fyrir afturhvarf fólks, er snýr sér til Krists. Róm. 6.17. 14. Fyrir þá náð, sem öðrum er veitt. Róm. 1.8., Efes. 1.15,16., Kól. 1.3.,4., 1. Þess. 1.2.,3. 2. Þess. 1.3. Fílemon 4.,5. Þetta virðist hafa verið tíðasta tilefni þakkargjörðar hjá Páli postula. 15. Vér eigum ávallt og í öllum efnum að færa Guði þakkir. Filippíbr. 4.6., 2. Þess. 5.18., Efes. 5.20. Hvernig getum vér gert þetta? „Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs.“ Róm. 8.28. Hvenær eigum vér að færa þakkir? 1. Á morgnana. Sálm. 92.2.,3. 2. Um miðnætti. Sálm. 119.162. 3. Þegar neytt er matar. 1. Tím. 4.4.,5. 4. Alltaf þegar við biðjum. Fil. 4.6. 5. I öllu, sem við gjörum í orði eða athöfnum, í Jesú nafni. Kól. 5.12. 6. I öllum hlutum. 1. Þess. 5.18. 7. Ávallt. Efes. 5.20. 8. Þakkargjörðin verður um eilífð. Opinb. 5.8.-14. 9. Lífíð á himnum verður eilíf þakkargerð. Er þá ekki best, að við byrjum að æfa okkur nú? Hvemig á að þakka? 1. Efes. 5.20. í nafni Jesú Krists. 2. Efes. 5. 18.-20. í krafti heilags Anda. 3. Jóh. 11. 41. Ákveðið, fyrirfram. 4. Kól. 2.6.,7. Vér eigum að vera auðug, skara fram úr í þakkargerð. 5. 1. Þess. 2. 13. Vér eigum að þakka án afláts. Ofanskráðar ritningargreinar og athugasemdir eru teknar úr bók eftir mann, sem heimskunnur var sem predikari og kennari við útbreiðslustarf og fræðslu- starfsemi í þágu boðunar kristinnar trúar. Hann hét Ruben Archibald Torrey, en venjulegast nefndur dr. Torrey. Hann vissi mætavel, að Orð Guðs er hin fullkomna kennslubók og heilagur Andi eini kennar- inn, sem getur skýrt hana. Aðalrit hans á sviðum þeim, er snerta kenningar heilagrar ritningar eru Bækurnar: „What the Bible Teaches.“ (Hvað kennir biblían.) Þessi kafli er úr henni. Hin heitir: „How to Work for Christ.“ (Hvernig á að starfa fyrir Krist.) Þegar mér var orðið ljóst, að Guð hafði kallað mig til þjónustu sinnar, en hins vegar að mér var ókleift að fara til náms erlendis í biblíuskóla, þá keypti ég þessar bækur. Leggið það á ykkur, lesendur góðir, að lesa í biblíum ykkar ofanskráða kafla, læraað þakka Guði, ef þið hafíð eigi numið það áður. „Kenndu oss að þakka fyrir mótlætið.“ Eigi man ég, hver bar fram þá bæn. En viturleg var hún og eftirbreytni verð. S.G.J. Ath.semd. Það mun hafa verið síra Böðvar Bjarnason á Rafnseyri, er hann vissi, að Guðrún dóttir hans var orðin berklaveik. S. G. J.

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.