Norðurljósið - 01.01.1981, Side 27

Norðurljósið - 01.01.1981, Side 27
NORÐURLJÓSIÐ 27 Vinur minn sagði frá því, hvernig Jesús hafði frelsað hann. Hann gat líka um það, að hann hafði reynt að fá mynd sína frá Joliet. Er hann hafði lokið ræðu sinni, kom Altgeld ríkisstjóri til hans, þerraði augun og mælti: „Herra Callahan, ég skal sjá, hvað ég get gert fyrir þig.“ Fáum dögum síðar fékk hann bréf, sem hljóðaði þannig: „Kæri herra Callahan. Það er mér mjög mikil ánægja að senda þér myndina þína, sem geymd var í hegningarhúsinu í Joliet, og að segja þér, að saka- skráin þín hefur verið eyðilögð. Nú er ekkert til, sem minni á hið fyrra, nema það, sem geymt er í minni þínu.“ Guð er hinn mikli, siðferðislegi ríkisstjóri heimsins. Þess vegna er hann skyldur til að refsa þér fyrir syndir þínar. En Jesús Kristur hefur tekið refsinguna á sig. Þess vegna getur hinn mikli, siðferðislegi ríkisstjóri orðið vinur þinn og gert að engu sakaskrá þína. Eins og hann segir í rimingunni: „Eg mun alls ekki framar minnast synda þeirra.“ „Lygin er eilíf ‘ Lítil stúlka kom til móður sinnar. Það var árla morg- uns. Hún spurði: „Hvort er verra, mamma, að ljúga eða stela?“ Móðir hennar svaraði, að hvorttveggja væri svo syndsamlegt, að hún gæti ekki sagt, hvort væri verra. „Jæja, þú skilur, mamma,“ sagði telpan, „ef þú stelur einhverju, getur þú skilað því aftur, nema þú hafír etið það, þá getur þú borgað það. En lygin verður eilíf.“ Lygi, hvort sem hún nefnist skrök eða ósannindi, tilheyrir sakaskrá okkar syndugra manna. En lof sé Guði, hún verður líka fyrirgefin og afmáð. Sektin, sem hún skapar, verður afmáð og hreinsuð af okkur með einu móti, þessu: „Ef vér játum syndir vorar, er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar; og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“ (1. Jóh. 1. 7.) CSögurnar báðar úr „Sverði Drottins“. - S. G. J.) Hvað getur hreinsað, ef hjartað er spillt? Hið heilaga blóð, frelsarans blóð. Sálnanna óvin, ef sigra þú vilt, þú sigrar fyrir lausnarans blóð. Viðlag: Mikinn kraft, mátt, undradýrlegt afl, á hans blóð, Jesú blóð. Veitir lífskraft, andlegt þrek og all, eilíft, dýrmætt frelsarans blóð. (Þýtt S. G. J.) Skrautkerið brotna Leirkerasmiður, mjög fær í sinni grein, átti heima í Englandi fyrir 100 árum. Hann hét Jósía Wedgwood. Þeir hlutir, sem hann bjó til, eru fjarska sjaldgæfír og dýrir. Dag nokkum fékk hann heimsókn. Hástéttamaður enskur kom til hans í verksmiðju hans, sem var mjög stór. Starfsmaður hans einn, fímmtán ára unglingur, fór með honum og skýrði fyrir honum, hvernig verkið væri framkvæmt. Hástéttamaðurinn, þótt gáfaður væri, trúði því ekki, að Guð væri til. Sagði hann margt ljótt og gerði gys að heilögum hlutum. Piltinum ofbauð í fyrstu orðbragð mannsins, en eftir nokkra stund var hann farinn að hlæja að því, sem hann sagði. Mr. Wedgwood var á eftir þeim og heyrði mikið af samtalinu. Gramdist honum mjög, hvemig þessi há- stéttamaður talaði og lét piltinn heyra til sín. Er þeir komu aftur inn í skrifstofu Mr. Wedgwoods, tók hann mjög fagurt skrautker. Á því voru úrvalsmyndir. Hélt hann því í höndum sér og skýrði fyrir hástéttamann- inum, með hve mikilli vandvirkni og hve langan tíma það tók: að búa til þetta fagra ker. Hástéttamanninum geðjaðist skýring hans vel. Var hann mjög hrifinn af lögun þess og litunum á mynd- unum. Rétti hann fram höndina til að taka kerið. Rétt um leið og hann snart það, lét eigandi þess það detta á gólfíð. Gesturinn mælti reiðiyrði og sagði: „Eg ætlaði mér sjálfum þetta ker. Nú hafíð þér ónýtt það með hirðuleysi yðar.“ „Lávarður minn,“ sagði gamli leirkerasmiðurirm. „Til eru hlutir, sem langtum eru dýrmætari en nokk- urt leirker, - hlutir, sem aldrei fást endurheimtir, séu þeir ónýttir. Eg get búið til annað ker alveg eins handa yður. En þér getið aldrei gefíð unglingnum aftur, sem nú er nýfarinn frá okkur, þá trú og það hreina hjarta, sem þér hafið tortýnt með því að geragys að heilögum hlutum og með því að nota saurug orð í áheym hans.“ Haldið þið ekki, að þetta hafí verið góð ræða fyrir mikinn hástéttamann? Heyrt hef ég menn segja, að þeir mundu vilja gefa til þess hægri arm sinn, að þeir gætu gleymt sumu af því, sem þeir heyrðu, er þeir voru drengir.

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.