Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 55

Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 55
NORÐURLJÓSIÐ 55 Afturhvarf Mikkels Bóndi nokkur, að nafni Mikkel, var uppi fyrir mörg- um árum í Wiirtenburg í Þýskalandi. Það var siður hans: að fara til annars þorps á hverjum sunnudegi, því að þar var söfnuður, sem kom saman sér til upp- byggingar og til að lesa Guðs orð. Mikkel hélt oft ræðu fyrir þessu fólki og talaði mjög hrífandi orðum. Stundum kom það fyrir, að hann kvartaði um kæruleysi nábúa sinna og guðleysi. Og hann bað mjög oft um, að þeir mættu snúa sér. Sunnudag nokkum var ókunnur maður á þessari samkomu. Hann sneri sér að Mikkel og spurði: Hvað er langt, síðan þér sneruð yður til Drottins? Tuttugu ár, svaraði Mikkel. Honum þótti vænt um að svara þessari spurningu, því að honum var sönn gleði að segja frá afturhvarfi sínu. En ókunni maður- inn hélt áfram að spyrja: Hafið þér búið alltaf í sama þorpi þessi tuttugu ár? Já, það hef ég gert, svaraði Mikkel og hugsaði með sjálfum sér, að það mundu ekki vera allir, sem gætu staðið öruggir í svo mörg ár eins og hann, og vera meðal þessara gálausu og veraldlega sinnuðu guð- leysingja. Ókunni maðurinn hélt áfram enn: Og er ekki nokkur, sem snúið hefur sér til Guðs í allan þennan tíma? Nei, nei, ekki einn einasti. Það hryggir mig oft. Þá hlýtur að vera eitthvað mjög varhugavert við kristindóm yðar. Hver hefur verið að tala illa um mig? spurði Mikkel hálfæstur. Það hefur enginn gjört. Eg kemst að þessari niður- stöðu vegna yðar eigin orða. Þá varð Mikkel mjög hryggur. Já, sagði hann, ég verð að viðurkenna, að ég er bráðlyndur, verð fljótt æstur og úthúða fólki. Það var því miður satt. Mikkel varð. stundum svo reiður og hafði svo hátt, að hálft þorpið gat heyrt það. Nú höfðu orð þessa manns mikil áhrif á hann. Þau veittu honum umhugsunarefni. Gæti það verið, að bráðlyndi hans væri í raun og veru heimilisfólki hans og nágrönnum til hneykslis, svo að fólk sneri sér ekki til Drottins? Hugsanir þessar lágu æ þyngra á hjarta hans, meðan hann gekk heim, því að hann var í raun og veru einlægur maður. Loksins gekk hann út af veg- inum, kraup á kné og hrópaði til Guðs: Kæri Drottinn, þú veist, að ég hef oft beðið um, að náungar mínir mættu snúast. Nú sé ég, að bráðlyndi mitt er þeim til hneykslunar. Þú veist, hvernig ég hef verið. Hjálpaðu mér til að leggja niður þessa ljótu synd. Hann stóð upp og fór heim í djúpum hugsunum. Alla nóttina stríddi hann við sjálfan sig. Þegar hann kom út á hlaðið næsta morgun, sá hann aktygi, sem hengu þar á trjágrein. Vinnumaðurinn hafði gleymt að láta þau inn í skemmuna. Mikkel fann, hvernig reiðin ætlaði að brjótast út. En hann bað til frelsarans og varð þá rólegur. Þegar hann hitti vinnu- manninn, sagði hann: Aktygin ættu helst ekki að hanga á trénu. Vinnumaðurinn varð hræddur og flýtti sér að svara: Æ, fyrirgefið þér. Ég gleymdi þeim þar. Það skal aldrei eiga sér stað aftur. Annars var bóndinn vanur að úthúða honum við slík tækifæri og velja hon- um alls konar uppnefni frá dýragarðinum. Fékk hann þá slík svör frá honum aftur. Gekk nú Mikkel inn í eldhúsið. Hvort sem það hef- ur verið af hræðslu, af því að húsbóndinn kom svo óvænt inn, eða þá af hugsunarleysi, en eldhússtúlkan missti stórt fat niður á gólfið, svo að það mölbrotnaði. Nei, nú gengur eitthvað á! hugsaði hún. Stóð hún með hendur á mjöðmum og með ögrandi svip. Hugsaði húp sem svo, að ekki skyldi sig vanta svör. Hún ætlaði jafnvel að segja upp vistinni, ef illa færi. En hver fær skilið undrun hennar, er Mikkel sagði aðeins: Vesal- ings Lisabet, nú verður þú víst fjarska eyðilögð yfir þessu. Hún tók hendur af mjöðmum, beygði sig niður til að tína upp brotin og sagði um leið: Já, það verð ég sannarlega, því að þetta var gott fat og hefur víst kost- að meira en lítið. Um kvöldið leit nágranni þeirra, Kláus járnsmiður, inn til konu Mikkels og spurði: Hvar hefur maðurinn þinn verið allan daginn? Hann hefur auðvitað verið heima, svaraði hún, hvar hefði hann annars átt að vera? Heima! Og ég hef alls ekki heyrt hann skammast við nokkurn eða hafa hátt! Hann segir, svaraði konan, að hann hafi verið að koma sér saman við frelsara sinn, að hann skyldi ekki vera reiður framvegis. Þá hlýtur hann að vera eitthvað geggjaður hérna, sagði járn- smiðurinn með alvarlegum svip og benti um leið á höfuð sér. Þetta kemur nú af því: að biðja og lesa biblíuna svona mikið. Það leið allt að miðvikudegi, og aldrei hafði fólkið í þorpinu heyrt Mikkel skamma .nokkurn. Var það undrandi yfir því. Þá komu menn sér saman um: að reyna hann og sjá, hve mikið hann þyldi. Einkum voru það strákarnir, sem gerðu allt, er þeim kom í hug, til þess að gera hann reiðan. Keyrði svo langt úr hófi hjá þeim, að þeir brutu rúðurnar hjá honum. En Mikkel þoldi allt með mestu ró og stillingu. Laugardagskvöldið kom jámsmiðurinn til hans og sagði: Ég hef þekkt þig, síðan þú varst lítill drengur. Við sátum saman í barnaskólanum, og ég veit, að þú ert mesti ofstopi í skapi. Vertu nú aftur eins og þú varst. Talaðu svo mikið sem þú vilt um afturhvarf þitt. En blessaður farðu aftur að skamma fólk og að vera ruddalegur í orðum, því að ég þoli ekki þessa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.