Norðurljósið - 01.01.1981, Page 58

Norðurljósið - 01.01.1981, Page 58
58 NORÐURLJÓSIÐ gefast ekki upp við kerlingarhróið, því að mér hefur fundist ég ekki hafa eins gott af neinu, sem ég hefí gert, eins og að dreifa Norðurljósinu, af því að ég hefi fund- ið, að Drottinn hefur gefíð mér styrk til þess, þó að ég hafi ekki haft neinn styrk í sjálfri mér. Svo veit Guð einn hvemig þetta verður, hvort ég hressist nokkuð með vorinu. Það hafa fleiri góðar konur hjálpað til þama upp á Akranesinu? Já, já, það var sem mér þótti svo mikið vænt um, að þær tóku við, þegar ég þurfti að fara. Það sem mér þótti verst við að fara suður, var það, að þurfa að sleppa því að dreifa Norðurljósinu. En þið voruð þá orðin svo aldurhnigin hjónin, að þið þurftuð að flytja til Keflavíkur í skjól sonar ykkar og tengdadóttur? MANNLÍF í MÓTUN Æviminningar Sœmundar G. Jóhannessonar í lok ritdóms síns í Morgunblaðinu í des. sl. segir Erlendur Jónsson svo um fyrra bindi æviminninga Sæmundar: ,JÞetta er heiðarlega skrifuð bók, und- anbragðalaus og hressileg; og að mínutn dómi skemmtileg Síðara bindi æviminninga Sæmundar er nú í prentun og kemur væntanlega út í maí, og verður áskrifendum sent það strax og bókin verður til í prentsmiðju. Þeir, sem ekki eiga fyrra bindið, en vilja eignast það, geta snúið sér til Sæmundar G. Jóhannessonar, Vina- minni, Akureyri. Útgefandi. frá Sjónarhceð. I.-II. BINDI. Já, það eru rúm 20 ár síðan. Hvað ertu búin að vera hérna lengi? Eg er bráðum búin að vera 3 ár. En þú ert alltaf heima hjá syni þínum og tengda- dóttur um helgar? Já, hann sækir mig alltaf á sunnudögum undan- tekningarlítið. Mér fínnst lakast, hvað ég er orðin sljó og slitrótt bænaiðjan. Eg tek mér nú sarrrt alltaf stundir á kvöld- in áður en ég fer að sofa. Það má nú ekki bregðast, og náttúrlega flýgur hugurinn oft þess á milli. Heimsóknartíminn takmarkast milli ferða áætlun- arbílsins, og ég kveð þessa öldruðu konu með þökk og virðingu. Þóra G. Pálsdóttir.

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.