Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 59

Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 59
NORÐURLJÓSIÐ 59 HIRÐIR HSI Inngangsorð. Fjórði hver maður á jörðinni er Kínverji, en jarðar- búar eru um fjögur þúsund milljónir. Þessi bók er saga hámenntaðs Kínverja, sem var þræll. Ópíumsnautnin hafði gert hann að þræli sínum. Hér á landi eru bæði margir ofdrykkju menn og neytendur fíkniefna líka. Kínverjinn fékk lausn úr fjötrum sínum. Bókin hefur boðskap handa öðrum. Við, svonefndir trúaðir menn, getum lært mikið af bókinni. Vinir kristniboðs og trúboðs, erlendis og innan lands, ættu að geta haft blessun af lestri þessarar bók- ar, þannig, að þeir biðji með ennþá meiri skilningi en áður fyrir starfsfólki Krists, innan lands og utan. Fólk, er biður fyrir sjúkum, ætti að lesa hana. Hún segir frá því, hvernig sjúkt fólk læknaðist sem svar við bæn. Þeir, sem ekki eru glaðir í trú sinni, ættu að lesa hana. Menningarsamband er komið á milli Kínverja og íslendinga. Þannig var kínversk menning. Kín- verska fólkið er jafn elskulegt nú sem áður, þótt margt hafí breytst um stjómarfar. S T T Framhald frá 1980. Kristniboði nokkur hefur skrásett atvik, sem getur sýnt, hve miklir voru erfiðleikamir í slíkum kringum- stæðum. Á fyrstu árunum í Ts’ao seng kom kona, sem Kuo hét, til Hsi. Hún átti í miklum erfíðleikum með einka- son sinn. Hann var þrítugur, en fjarri því að vera ekkjunni, móður sinni, nokkur stoð eða huggun. Hann var, eins og hún sagði, ópíums-þræll, óreglumaður alger og sýndi enga sonarlega ást. Vesalings konan sárbað, með mörgum tárum, Hsi að taka mál hans að sér. Skuldugur vegna fjárhættuspila, og sárhræddur vegna undangengins óhófs, var hann fús til að snúa við blaðinu og vera tekinn undir væng hins kristna fræðimanns. Eftir talsvert hik samþykkti Hsi þetta. Það var eitt- hvað aðlaðandi við vesalings manninn. Hann virtist vera meir en fús til að vinna fyrir sér og laga sig eftir reglum heimilisins. Með þessum skilmálum var hann tekinn á heimilið, Hsi greiddi ekkert kaup, en sá fyrir honum eins og væri hann sonur hans. í fyrstunni hagaði hann sér vel. Þrátt fyrir miklar þjáningar og erfíðleika læknaðist hann af ópíums- nautninni. Hann var skjótur að nema kristilega breytni hið ytra og varð kunnugur biblíunni og kenn- ingum hennar. En áður en margir mánuðir væru liðn- ir, fór hann að verða óþolinmóður við að halda sér í skefjum. Orðsnar og samviskulaus var hann og tókst að líta vel út hið ytra, en láta aðra bera sökina fyrir það, sem hann gerði rangt. Þolinmóður bar Hsi þessa skapraun. Reyndi hann með öllu móti að láta hann sjá að sér, en árangurslaust. Þetta hélt áfram ár eftir ár. Kuo kærði sig ekki um: að yfirgefa heimilið, og Drott- inn gerði ekkert til að koma honum á brott. Þá varð það eftir fjögur ár, að breyting kom. Það var sem ungi maðurinn vaknaði snögglega og gerði sér ljósa grein fyrir þessu öllu. Náð Guðs hertók hjarta hans. Sýndist hann vera alveg afturhorfinn maður. Fullur af gleði fyrirgaf þá Hsi allt hið liðna og setti hann í sonarsess í ástúðlegum tilfínningum gagnvart honum. Er tíminn leið, virtist hann staðfesta einlægni Kuos. Hæfileikar hans og gáfur voru sívaxandi huggun, og hann varð einn af nytsamlegustu mönn- um heimilísins. Einmitt þá, er ekki virtist unnt að vera án hans, kom kristniboðinn, sem var yfir þessu héraði. Beiddist hann að fá þennan mann til starfa undir sinni umsjá í næsta fylki. Þetta var mikil fórn fyrir Hsi. En er hann bað, fannst honum: „Þetta er skipun útlenda hirðisins. Ég þori ekki að neita þessu. Drottinn mun gefa mér annan hjálpar- mann.“ Kuo fór, og í nokkur ár gekk allt vel. Predikun hans var vinsæl, framkoma hans aðlaðandi. Kristniboðinn treysti honum algerlega. En tíminn kom, er hann átti aleinn að sjá um stöð- ina. Allmikla peninga hafði hann undir höndum. Starfíð blómgaðist, og fólk fyllti kapelluna. Þá varð Kuo hreykinn og fór að breyta ranglega. Peninga- elskan hertók hann. Leiddi það brátt til skipbrots. Kristniboðinn flýtti sér þangað, en rak sig á, að hann var sem fleyta á útsæ erfiðleika. Það var ekki eins létt að losna við Kuo eins og að fá hann. Hann bauð byrg- inn öllum yfirráðum og dró marga með sér, sem höfðu snúið sér. Stöðu sinni var hann sviptur að lokum og varð að fara úr fylkinu. Brjálaður af reiði og vonbrigðum, er mannorð hans og tækifæri voru horfin, sneri hann aftur til Vestur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.