Norðurljósið - 01.01.1981, Side 67

Norðurljósið - 01.01.1981, Side 67
NORÐURLJÓSIÐ 67 sambandi við Hælin. Þeir voru allir menn, sem voru honum alveg að skapi. Hann mat þá mikils og þeir hann. „Hsi er maður, sem Guð hefur vakið upp,“ ritaði Mr. Hoste, „til að vera hirðir hjarðarinnar í þessu héraði. Drottinn hefur gefið honum vald í augum fólksins.“ Ásamt þeim kristniboða, er veitti starfinu í héraðinu forstöðu, undirbjó hann trúaðramót. Þar skírði hann fleiri en sjötíu manns, er rannsökuðu kenninguna og komu frá stöðvum umhverfís. Óvenjumikill kraftur hvíldi yfir samkomunum, sem varð að halda utan dyra þrátt fyrir mikla rigningu. Eftir sjö mánaða þurrk var sár þörf á regninu. Kristnir menn vildu ekki biðja, að það yrði látið hætta. Sunnudagurinn nálgaðist, og líkurnar fyrir steypi- regni gáfu bendingu um: að skipta þyrfti hópnum og hafa samkomurnar innan veggja. „Við skulum ekki hafa áhyggjur út af því máli,“ sagði Hsi hljóðlátlega. „Ég hef beðið Drottin, að hann taki regnið burt í tvo daga, meðan mótið stendur yfír. Ég er viss um, að við fáum góðan sunnudag.“ Það reyndist líka svo. Samkomumar voru haldnar í garðinum að húsabaki eins og venjulega. Eitt hundrað og tuttugu trúaðir söfnuðust kringum borð Drottins. Nýjar hugmyndir og áhrif sóttu fast á huga ungu kristniboðanna. Allt þetta var þeim innblástur. „Trúaðramótið var stórkostlegt,“ ritaði einn af hópnum. „Að vera leyft að sjá svona skjótt eftir komu sína til Kína það, sem margir heilagir og áhugasamir guðsmenn hafa stritað fyrir og beðið alla sína ævi, en aldrei fengið að sjá - lifandi söfnuð í hjarta þessa myrka lands - það er mikil ábyrgð og einnig líka forréttindi. 14. KAFLI >yEkki við blóð og hold“ Dimmur var heiðindómurinn, sem þeir voru um- kringdir, kristniboðarnir ungu. Jafnvel meðan á trúaðramótinu stóð, fengu þeir að reyna það. Með sársauka kynntust þeir staðreyndum, sem gerast í sambandi við: að vera haldinn af illum öndum. Þeir kynntust reynslu fólksins og hugmyndum þess um þetta efni. En þó að máttur óvinarins yrði þeimkunn- ur, bæði á þennan og annan hátt, þá fengu þeir einnig djúpstæðari reynslu af því, hve full var sú hjálparlind, sem þeir áttu í hinum lifandi Guði. „Hvílíka huggun fínnum við,“ ritaði Stanley Smith, „í þremur litlum orðum ,Hann er megnugur.4 Mikilfenglegt er: að breyta vantrúar spurningunni: „Skyldi Guð geta?“ í „Guð er þess megnugur“ (Sálm. 78. 19., 2. Kor. 9. 8.) taka mátt hans trúartaki. Sterkir í Drottni erum við tilbúnir í orrustuna, færir um að standa gegn öllum vélráðum djöfulsins, og að geta staðist á hinum vonda degi, færir um að slökkva öll hin eldlegu skeyti hins vonda.“ Meðal þeirra, sem sóttu trúaðra mótið, var ungur maður frá Chao-Ch’eng Hælinu. Var haldið, að hann væri undir valdi illra anda. Hann sýndist oft heil- brigður vikum saman. Á öðrum tímum komst hann í ástand, er líktist verstu köstum þeirra, sem guðspjöll- in greina frá, er voru undir valdi illra anda. Á fyrstu dögum mótsins var þessi vesalings maður rólegur og meinlaus. En er samkomurnar héldu áfram, varð hann gripinn áköfum brjálsemi köstum, svo að hann var hættulegur sjálfum sér og öðrum. Hsi var ekki viðstaddur á þeim tíma, en kom, þegar köstin stóðu sem hæst. Hann var látinn vita þegar í stað, hvað var að gerast, og hann flýtti sér til æðisgengins manns- ins með illa andann. Nógu var það einkennilegt, að jafnskjótt sem Hsi nálgaðist, varð K’ong rólegur. Hróp hans og umbrot hættu, og þeir menn, sem héldu honum, linuðu á tökunum. „Honum er batnað! Honum er batnað!“ hrópuðu þeir. „Illi andinn hefur farið!“ Hsi var samt ekki ánægður með þetta. Hann lagði hendur sínar á höfuð unga mannsins um leið og hann bað innilega fyrir honum í nafni Jesú. Árangurinn kom þegar, algjör lausn. Ástæða virtist til að vona, að erfíðleikar þessir væru alveg sigraðir. Kristniboðinn einn var viðstaddur. Hafði það, sem átti sér stað, mikil áhrif á hann. Var það einkum kraft- urinn, sem fylgdi komu hans Hsi og bænum hans. Hann var með fímmtíu dollara, sem hann gat ráð- stafað. Fór hann með þá til Hsi og sagði: „Útgjöld þín í sambandi við starfíð hljóta að vera talsvert mikil. Gjörðu svo vel að þiggja þetta tillag, og notaðu það eins og þér sýnist best.“ Undrandi, og án þess að gera sér alveg ljóst, hve upphæðin var há, tók Hsi við silfrinu. En varla hafði hann verið búinn að því, er honum fór að líða illa útaf þessu. Fimmtíu dalir virtust stór fjárhæð (237,56 kr., er þetta er gefíð út). Hann hafði líka tekið á móti þessu án þess að bíða og ráðfæra sig við Drottin. Var það ágirnd, sem hafði komið honum til að gera þetta án þess að bíða og ráðfæra sig við Drottin? Eða hafði hann komist í gildru, kænlega búna til af djöflinum? Því meir, sem hann hugsaði um það, því órólegri varð hann. Hann skildi féð eftir hjá konu sinni til varð- veislu og fór aleinn að biðja. Varla hafði hann fundið sér kyrrlátan stað, er sendi- mður kom í skyndi að sækja hann. „Komdu fljótt! Málið er alvarlegt! hrópaði hann.

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.