Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 74

Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 74
74 NORÐURLJÓSIÐ En móttökumar, sem þeir fengu, er þeir komu til Hung-tung, meir en bættu fyrir hættumar og erfíð- leika ferðalagsins. Árin vom mörg og löng, sem Hudson Taylor hafði unnið án afláts að því, að Upp- löndum Kína yrði boðað fagnaðarerindið. Oft hafði þetta sýnst vonlaust verk, hindranirnar svo miklar, að þær yrðu ekki yfirstignar. En tími Guðs var loksins kominn. Bjargið, sem lokaði veginum, opnaðist. Og hér, langt inni í Kína, gat hann litið ásjónur bæði karla og kvenna, sem fyllt vom kærleika Krists. Hér var fólk, frelsað sjálft, sem varði ævinni til að frelsa aðra. Það vakti í sannleika mikinn áhuga: að vera hér á meðal alls þessa fólks, kynnast mörgum, sem hann þekkti að nafni og var kunnugur sögunum af þeim. Oft hafði hann beðið fyrir þeim og fagnað yfír þeirri blessun, sem fylgdi starfí þeirra. Nú heyrði hann Hsi sjálfan og konu hans, Song, Chang og marga aðra. Hann gat heyrt sjálfur, hvernig þessum bænum hafði verið svarað langt fram yfír allt það, sem hann hafði beðið um eða hugsað. Hann ráðfærði sig stundum saman við Mr. Steven- son. Glæddust þá vonir hans um áhrifin af starfinu, er hann vikum saman hafði verið að kynna sér. Af hon- um heyrði hann sagt frá mörgu, er staðfesti skoðun hans sjálfs, að kominn væri tíminn að skipuleggja söfnuðina um allt Suður-Shan-si. Margaf starfs- stöðvar voru þama. Sjáanlega var hönd Guðs að verki. . . . En þetta var ekki nóg. Söfnuðina varð að annast um. Guð hafði vakið upp menn og gefíð þeim sérstakar gáfur til þessarar þjónustu. Gætu þeir orðið djáknar, öldungar og safnaðarhirðar.. .. Ráðfærði hann sig að lokum við þarlenda leiðtoga. Voru tuttugu menn, sem áttu að hafa með höndum ýmiss konar stjómarstörf meðal safnaðanna. . . . En hvað átti að gera við Hsi. Hann var öldungur, en að gera hann að safnaðarhirði var ekki að auka starfs- svið hans, heldur minnka það. Hann þjónaði í raun og vem öllum kristnum mönnum á báðum þessum svæð- um. Hann var því í algerri sérstöðu. Fólkið nefndi hann „Hirðihn okkar.“ Eftir bæn og íhugun var sam- þykkt: að gera hann að yfir-hirði svæðanna þriggja. Hefðu þá allir söfnuðirnir gagn af þjónustu hans. Þá væri hann frjáls til að fara þangað, sem þörfín væri mest hverju sinni. Ekki hafði ákvörðun þessi fyrr verið tekin heldur en óvæntir örðugleikar komu í ljós. Þegar Hsi var sagt frá þessari nýju stöðu hans, vildi hann ekki veita henni viðtöku. „Ég er fylltur veikleikum og brestum sjálfur,” hélt hann fast fram. „Hvemig ætti ég að veita yfírumsjón söfnuðunum öllum? Er betra að leggja slíkar skyldur á herðar reyndum, útlendum kennumm heldur en mér.“ Er hann var beðinn að íhuga málið, gaf hann sig að bæn og föstu, eins og vandi hans vár í erfiðleikum. En hann gat-ekki losnað við þá hugsun, að hann væri óhæfur til starfsins. Loksins kom Mr. Stevenson til hans og sagi: „Bróðir Hsi, hvernig gemr þú hafnað þessari stöðu? Guð hefur sjálfur kallað þig til hennar og notað þig þegar árum saman einmitt í þessu starfí, sem þú hörf- ar nú frá. Þetta er ekkert nýtt, heldur opinber viður- kenning á því, sém þú hefur verið að gera.“ Þá fór Hsi að hugsa um, að þetta væri satt. „Drott- inn hefur gert mig færan um að annast þessa litlu söfnuði frá upphafí. Þóknist honum að nota mig enn sem verkfæri sitt á stærra starfssviði, hvernig get ég vogað að neita því?“ Þannig var þessi erfíðleiki sigraður. Hsi reiddi sig á guðlegan styrk til starfsins. Reynslan hafði þegar kennt honum, að sannarlegt leiðtoga starf í söfnuði Guðs merkir krossburð í þjónustu, í sjálfsafneitun. Páll vitnar oft til „postula tákna“ til að sanna köllun sína til þjónustunnar (Sjá 1. Kor. 4. 9.-13.; 1. Kor. 9 kafli allur. 2. Kor. 4. kafli allur. 11. kafli 5.-12., 15.) höfðu þau haft mikið gildi fyrir hann. En við ópi hans: „Hver er til þessa hæfur, varð hann að læra svarið: „Hæfileiki vor er frá Guði.“ Gagnlegar stundir samtala flugu hjá. Sunnudags- morgunn rann upp, - hinn mikli dagur hátíðarinnar. Guðsþjónustur byrjuðu klukkan 7, en á hádegi var húsagarðurinn orðinn fullur af fólki. Þrjú hundruð manns höfðu safnast þar saman til guðsþjónustu. Var undursamlegt að sjá þetta í heiðinni borg, sem fagnað- arerindið hafði fyrst náð til fáum mánuðum áður. Daginn eftir voru hirðar safnaða vígðir. Hsi var vígður, en ekki sem hirðir nokkurs sérstaks safnaðar. Hann gat því ferðast um og starfað hvar, sem hann vildi. Þetta var fjarska alvöruþrungin stund. Hsi varð sér meðvitandi um nýja köllun og helgun til starfs á kom- andi árum. Minningin um þetta: lagning handa á höfuð hans, færði honum alltaf blessun á komandi ár- um, tilfínningu, að Guð hafði sett hann í starfíð, sem hvorki úrtölur né erfiðleikar komandi ára gátu afmáð. Síðustu samkomur mótsins komu allt of skjótt. Áður-en kvöldið kom var Hung-tung kirkjan vígð, er haldin var þar fyrsta samkoman til að neyta drottin- legrar kvöldmáltíðar. Ur héraðinu þar voru sjötíu manns, karlar og konur, sem frelsast höfðu frá til- beiðslu illra anda, ópíums-reykingum og vansæm- andi heiðindómi. Þeirrar stundar mátti lengi minnast. Þetta setti viðkvæman blæ á skilnaðinn, er fólkið dreifðist, sem varir, - „þangað til Hann kemur.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.