Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 9

Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 9
129 L ÖGRJETTA 130 þyngri áhyggjur. Þá áttu þeir við að stríða erfiðleikana á því, að útvega rjett það, sem stritandi fólk þurfti að bíta og brenna. Þessu er ekki svona farið í Evrópu nú. Þar er þvert á móti svo mikið daglegt brauð, að unt er að fæða einnig þá, sem atvinnu- lausir eru. Við megum því ekki halda, að erfiðleikamir, sem nú sverfa að muni hefta framfarirnar. Jafnvel þótt þeir komi hart við okkur og neyði okkur til þess að breyta vinnubrögðum okkar, munu þeir verða til þess að lokum, að skapa betri lífsskilyrði um allan heim. "Kreþpan og vísíndín Kaupsýslumenn og stjórnmálamenn eru sammáJa um það, hvað sem þeim ber ann- ars á milli, að á kreppunni verði ekki sigr- ast nema með fjárhagslegum og pólitískum ráðum. Þetta er samt ekki allra manna skoðun. Ýmsir náttúrufræðingar eru á öðru máli. Menn geta einungis sigrast á krepp- unni, segja þeir, með aðstoð vísindanna, með því að hagnýta sjer ný vísindaleg vinnubrögð og vísindalega hugsun, sem skapar ný og bætt atvinnu- og lífsskilyrði. Á tímum eins og stríðstímanum seinasta knúði þörfin og neyðin fram miklu örari og skarpari hugsun og vinnu en ella er al- geng og afarmargar og merkar nýjungar voru þá hugsaðar og reyndar, miklu fleiri en hægt var að nota, eða þörf var á að framkvæma í svipinn í ólgu ófriðarins. Kreppan hefur m. a. sprottið af þeim skyndilega afturkipp, sem eftir stríðið kom í slíka starfsemi. Fjöldi af verksmiðj- um, umfangsmiklar framleiðslugreinar, stöðvuðust, fólk varð atvinnulaust og fjár- málin komust á ringulreið o. s. frv. Kreppan hverfur svo þegar menn fara aft- ur að hagnýta og bæta þær hugsanir og rannsóknir, sem byrjað var á áður en kreppan skall á, en ekki var þá unt að nota út í æsar. Svipuð hugsun og þessi kemur til dæmis fram nýlega í ritgerð í Scientific Ame- rican. Heimsstyrjöldin krafðist fyrst og l'remst betra efnis en áður var til, segir höf. Menn fundu þá ýmsar nýjar aðferðir til þess að hagnýta járn, stál og aðra málma, menn endurbættu stórlega útvarps- tæki og ýms samgöngutæki, einkum flutn- ingabíla og lærðu nýja notkun á baðmull og „nitrocellulosa“ (vegna reyklausa púð- ursins) — alt í hernaðarþágU. Eftir stríðið hafa menn íarið að nota þessar uppgötvanir og rannsóknir á nýjum og víðtækari grundvelli en áður, í þágu friðsamlegrar framleiðslu. Stáliðnaðurinn er að verða meiri og meiri og stálið notað á margvíslegan hátt, sem áður var óþekt- ur. Úr púðurframleiðslu stríðsáranna, eða baðmullarnotkuninni í sambandi við hana, hefur, þótt undarlegt virðist í fljótu bragði, sprottið nýr og mikill silkiiðnaður, fram- leiðslan á silkilíki (eða ,,kunst“ silki), sem gert er úr baðmull, sem látin er verða fyrir ýmsum áhrifum saltpjeturssýru og annara efna. Úr þessnm sömu tilraunum hefur einnig sprottið nýr málaraiðnaðui, fram- leiðsla á nýju lakki (eða lakkfernis). Þá eru alkunnar framfarir síðustu ára á sviði útvarps og flugferða og mætti svöna lengi telja. ,,Sá, sem ætlar sjer að finna heil- brigða og hagnýta lausn á iðnkreppu þeirri, sem nú gengur yfir, verður að gera sjer grein fyrir iðnþróun seinustu áratuga og grafa upp ónotaðar eða hálfnotaðar hugs- anir þaðan. Þar er lykillinn að arði fram- tíðarinnar". 'Kreþpan og heímsverslunín Kreppan hefur haft mjög tilfinnanleg áhrif á svo að segja alla verslun í heimin- um. Mönnum telst svo til, að verðmæti vöruumsetningarinnar í 19 helstu verslun- arlöndum heimsins hafi síðastliðið ár(1931) numið 28.9 milljörðum dollara, eða verið um 20 milljörðum minna en árið 1929, þá var það 49.5 milljarðar, 1930: 40.5, 1927: 48.2 og 1928: 49.7. Ef merðmæti umsetning- arinnar 1927 er sett 100, er það 59.9 árið 1931. Þessi lækkun spratt að mestu leyti af verðfallinu, en þó var það ekki eins mikið og rýrnun vörumagnsins. Ef heild- sölumeðalverð er sett 100 árið 1927 var það 74.5 árið 1931, en hafði farið upp í 102.4 árið 1928 (samkv. Bureau of Labour). Framleiðslan hefur einnig minkað, þó ekki verði enn sjeð með vissu hvort hún hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.