Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 56

Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 56
223 LÖGRJETTA 224 Jeg ætla hjer ekki að ásaka, hvorki stjórn landsins nje Alþingi nje almenning, fyrir þær misfellur, sem finna má í meiri eða minni mæli í þessum efnum, því það er komið sem komið er. Landið er orðið stórskuldugt, svo að nægilegar byrðar hljóta að koma af þeim völdum á landslýðinn, ef hann á að inna allar skyldur sómasamlega, eða svo sem samningar standa til, af hendi. Atvinnu- vegir landsmanna til sjávar og sveita eru í hinum mesta vanda staddir og epn er ó- sjeð um, hvernig úr öllum þeim bágbornu horfum rætist. Við aðeins vonum, að enn sje þetta land ekki öllum heillum horfið og að betur rætist úr en á horfist. Það er þó að svo stöddu von, en engin vissa. Þessari þjóð hefur einatt verið sýnt í tvo heimana, hún hefur orðið að ganga í gegnum margar og þungbærar eldraunir, en jafnan hefur þó rofað til aftur, og von- in hækkað fyrir sakir batnandi hags, þó hún um hríð mætti heita með litlu lífi. Og það er skylda okkar allra að vona, að treysta hamingju þessa lands og guði vors lands til hins besta, en við verðum að muna, að við öll eigum að vera og verða samverkamenn, öll börn þessa lands, til þess að dreifa hinum dimmu skúra- og skýjaflókum hinna yfirstandandi eymda. Það sem er eftirtektarvert í þessum erfiðleikum víðsvegar út um heim, er það hversu mjög menn byggja vonir sínar á aðgerðum stjórna landanna og löggjafar- þinganna. Allra augum er eins og mænt þangað, því þar sje helst meinabót. Hin og þessi lög eru sett, hinar og þessar regl- ur, sem að vísu eru til einhverra úrbóta að ýmsu leyti, sumar, og aðrar aftur, sem alls eigi verka, eins og til er ætlast. Og þegar virðist úr einu vandamáli ráðið, vekst annað upp, jafn erfitt eða erfiðara viðfangs. Hjer á landi verður þess einnig vart og er bersýnilegt, að margir byggja eins og framtíðarvonir sínar á aðgerðum stjórnar og Alþingis, til þessara aðila koma kvart- anir yfir ástandinu og beiðnir um að bæta úr hinu og þessu, það gæti þó enginr. ætlað í alvöru, að stjórn og þing gæti ráðið til nokkurrar hlítar fram úr því, sem að er. Með gætni og hyggindum, með viturlegri stjórn þeirra beggja aðila og viturlegri lög- gjöf má að vísu gera einhverjar umbætur, en við vitum að það er ekki einhlítt. Meðan ríkið sjálft vantar afl þeirra hluta sem gera skal, það er fjármagnið sjálft, er þess engin von. Hinar ýmsu kvartanir verða í reynd- inni þannig, að hver fer í annars kjölfar, án þess að þeir sem bera þær fram hafi nokkra von um að úr þörfunum verði bætt. En við megum ávalt hafa það hugfast að þó margvíslegur stuðningur geti þannig að vísu komið að ofan, þ. e. frá þeim, er æðstu völdin hafa í löggjafarmálum og frá framkvæmdarvaldinu, væri sá aðili eða þeir aðilar harla máttvana, ef eigi kæmi beinn stuðningur að neðan, það er að segja frá öllum öðrum stjettum þjóðfjelagsins. Jeg fyrir mitt leyti byggi lang helst vonir mínar í þessum efnum á fólkinu sjálfu, á valdalausu fólki, bændum og búaliði, á verkamönnum, vinnumönnum og vinnukon- um, á iðnaðarmönnum og hverjum öðrum starfsmanni ríkisins, hærra eða lægra sett- um í þjóðfjelaginu. Hjálpin verður að koma frá fólkinu sjálfu, á því verður að byggja viðreisnarmál þjóð- arinnar. Margir segja og halda: Það munar ekkert um mig. Jeg get svo lítið. Ef allir segðu nú þetta og ljetu þessvegna vera að hefjast handa um eitt og annað sem til heilla má horfa, hvað yrði þá gert? Ef ekk- ert munar um einstaklinginn, um hvern eða hverja á þá að muna? Við verðum að muna það, hver einstakur, að vissulega munar um okkur, hvern í sínu lagi. Það stendur aldrei á sama um nokkurn mann svo, að það muni ekkert um það á hvora sveifina hann legst, hvort heldur til liðs eða óliðs einhverju sjerstöku málefni. Jeg get yfir höfuð ekki hugsað mjer neinn mann, hvorki karl nje konu, svo lítilmót- legan, að það sje ekki betra að hafa hann með sjer en móti. Eða gætuð þið hugsað ykkur nokkurn slíkan mann, eða jeg vil spyrja: Hafið þið nokkurntíma þekt nokk- urn slíkan mann? Jeg játa að slíkan vita máttarvana mann hef jeg aldrei þekt. Jeg held vissulega að hann sje alls ekki til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.