Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 10
131
LÖGRJETTA
132
minkað eins mikið eða meira en verslunin.
Samkvæmt þýskum skýrslum hefur iðn-
aðarframleiðsla minkað um 25—30% á ár-
unum 1929—31, en framleiðsla búnaðaraf-
urða hefur minkað miklu minna. Innflutn-
ingshöft og verndartollar hafa dregið mikið
úr millilandaverslun, en aukið nokkuð
heimaframleiðslu * sumra landa. Kreppan
hefur komið harðast við ýms kornútflutn-
ingslöndin. Rússland hefur þó aukið utan-
ríkisverslun sína og Þýskaland flutt miklu
meira út en inn.
Innflutningur Útflutningur
í millj. doll. í millj. doll.
1930 1931 1930 1931
Bandaríkin .. .. .. 3120 2088 3780 2424
England .. .. .. .. 4656 3600 2784 1764
þýskaland.. .. .. .. 2472 1608 2700 2196
Frakkland .. .. .. 2052 1656 1680 1188
Canada .. .. 1008 612 888 588
Indland .. .. 684 468 924 564
Japan .. .. 756 648 708 588
Holland .. .... 972 768 684 528
Italía .... 912 612 636 528
Bclgía .... 864 660 732 648
Argentína.. .. .. .. 624 348 516 432
Ástralía .... 444 180 432 324
Tjekkoslovakia .. .. 468 348 516 384
Svíþjóð .. .. 444 360 420 288
Spánn .. .. 468 228 444 180
Sviss .. .. 516 432 336 264
Danmörk .. .. .. .. 444 348 408 312
Brasilia .. .. .. .. 251 132 312 240
Noregur .. .. .. .. 288 216 180 108
Alls 21444 15312 19080 13548
Þar að auki er svo utanríkisverslun
Rússa, sem var: innfl. 480 milj. og útfl. 444
millj. 1930 og hafði aukist um ca. 20% frá
1927—29.
"Kreppan oq ríhíssjóðír
Ríkissjóðir allra landa hafa einnig feng-
ið að finna sárt til kreppunnar. Tekjur
þeirra eru mjög háðar afkomu atvinnu-
lífsins og minka eftir því sem gjaldgeta
þeirra þverr, en gjöld ríkjanna eru fastari.
Flest ríkin hafa því verið rekin með tals-
verðum halla, þótt reyht hafi verið að
spara.
Bandaríkin fóru auðugust allra landa út
úr styrjöldinni. Fjárhagsárið 1929—30 var
tekj uafgangur þeirra 183 miljónir dollara,
auk þess, sem þeir minkuðu ríkisskuldir
sínar um 745 milljónir. Síðan hefur hagur-
inn síversnað og er nú gert ráð fyrir 2,1
milljarða halla á fjárhagsáirinu 1932—33,
en síðastliðið ár var hallinn 900 milljónir.
Sum einstök ríki eru þó nokkuru betur
stödd en sambandið, því að þau nota mest
eignaskatt, en sambandið aðallega persónu-
legan tekjuskatt og gróðaskatt á hlutafje-
lög. Bandaríkin mistu einnig 270 millj. doll-
ara tekjur síðastliðið fjárhagsár vegna
Floover-greiðslufrestsins. Frakkar höfðu
einnig farið fjárhagslega vel út úr stríð-
inu að ýmsu leyti og búið vel að sínu. 1930
—31 var hallinn á ríkisbúskap þeirra þó
orðinn ca. 2% milljarður franka og síðasta
fjárhagsár hefur hallinn sennilega orðið
um 5 milljarðar reikningslega, en raun-
verulega miklu meiri, því að þeir hafa
greitt um 5 milljarða af hailanum úr sjer-
stökum varasjóðum frá fyrri árum. í Eng-
landi var hallinn á fjárhagsárinu 1930-—31
23 milljónir punda og á fjárlögum yfir-
standandi árs er reiknað með 75 milljón
punda halla, sem jafna á með sparnaði og
minkuðum afborgunum af ríkisskuldum.
Síðustu sparnaðarráðstafanirnar nema um
70 milljónum punda og er nú talið að Bret-
ar hafi sigrast á fjárlagakreppu sinni. Hol-
lendingar standa sig einnig vel, en hafa
þurft að spara á ýmsum liðum. Reiknings-
legur halli á núgildandi fjárlögum þeirra
er að vísu nokkur, en mikið af hallanum
eru gjöld vegna raunverulegra eignaaukn-
inga. Norðurlönd hafa einnig, hlutfallslega
við flest önnur ríki, staðið sig sæmilega.
I Danmörku var 25 milljón kr. tekjuaf-
gangur 1930—31 og ráð er gert fyrir því,
að hallinn 1931—32 verði ekki mjög til-
finnanlegur. 1 Noregi er gert ráð fyrir
sæmilegum jöfnuði og í Svíþjóð var góður
tekj uafgangur 1930—31, en á fjárlögum
yfirstandandi árs er gert ráð fyrir tals-
verðum halla og miklum nýjum sköttum
(ca. 70 millj. kr.), til þess að vega upp á
móti honum, auk þess sem gera má ráð
fyrir því, að Kreuger-hrunið valdi talsverðu
t j óni.
í Ítalíu var 150 milljón líra tekjuafgang-
ur 1929—30 og höfðu skattar þó verið