Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 23
157
L ÖGRJETTA
158
Hindúa og Múhameðsmanna o. s. frv. Nú'
sem stendur er unnið af kappi að undirbún-
ingi nýrra frumvarpa um heimastjórn í Ind-
landi og stöðu þess í alríkinu. Tvær nefnd-
ir, Percy- og Lothian-nefndin hafa skilað
álitum sínum um fjármál og kosningarrjett
og er gert ráð fyrir því að í haust komi
tillögurnar opinberlega til umræðu í enska
þinginu, en ekki er gert ráð fyrir úrslitum
fyr en 1933 eða 1935. Líklega verður reynt
að mynda í Indlandi bandaríki með allvíð-.
tækri sjálfstjórn. — 1 einu Austurlandarík-
inu hafa nýlega gerst talsverð tíðindi, í
Síam. Þar hefur farið fram einskonar bylt-
ing (það orð vilja þeir, sem fyrir breyting-
unum standa, samt ekki nota). Konungur-
inn, Prajadhipok, sem hefur verið einvald-
ur, hefur nú viðurkent þingræði í landinu
og almennan kosningarrjett. En í raun og
veru er það hermannavald, sem að breyt-
ingunni stendur. Með þessari bvltingu er
fallið eitthvert síðasta algerða einveldið,
sem til var í heiminum og vestræn lýðræð-
ishugsun er komin í staðinn, hvað sem úr
verður. Prajadhipok konungur er sjöundi
konungur ættar sinnar og síðan Mongkut
kom til valda 1851 hefur í Síam verið tekið
upp ýmislegt það besta úr vestrænni menn-
ingu, en samt verið haldið fornri trú og
siðum og stjórnarfarið verið gott. En
kreppan hefur komið illa við fjárhag ríkis-
ins og átt sinn þátt í því að knýja fram
breytinguna, sem þjóðin er varla búin við.
/Pfvopnunín
Tillögur Hoovers
Afvopnunarráðstefnurnar hafa gengið
skrykkjótt og þótt oft hafi menn mælt þar
fagurt, hefur líka verið hugsað þar flátt,
lítil alvara verið í afvopnunarskrafinu og
vígbúnaður þjóðanna haldið afram eftir
sem áður. Góður árangur Lausanne-ráð-
stefnunnar ætti að geta greitt fyrir alvar-
legri úrlausn afvopnunarmálanna. Það
merkasta, sem fram hefur komið í afvopn-
unarmálunum upp á síðkastið, eru hinar
nýju tillögur Hoovers Bandarík j af orseta.
Þær fara fram á það, að allur vígbúnaður
ij yfír djúpín dagur skín j:
>; Yfir djúpin dagur skín j;
dreifist myrkrið kalda. •;
|; Breiðist ljóssins bjarta lín •;
Um bláa öldufalda. •;
! ; Við skulum út á Unnarslóðir halda. I;
i Þar sem aldrei dagur dvín ;!
: dauðanum engir gjalda, j!|
þar er ástin þæg og fín, j!|
(: þrautum engir valda. j!1
I: Við skulurn út á Unnarslóðir halda. •![
i Yfir djúpin dagur skín, :•
i dauðanum allir gjalda, :•[
i þó að bjart sje ljóssins-lín,
i loks kemur myrkrið kalda. :<!
i Við skulum ekki á Unnarslóðir halda. i;|
Steinn Steinarr. i;!
heimsins verði minkaður um þriðjung eða
þar um bil. Að því er snertir orustuskip
(battleships)og neðansj ávarbáta á að fækka
þeim um þriðjung og engin þjóð má eiga
meira en 35 þús. smálestir þeirra síðar-
nefndu. Landheri á að minka um þriðjung,
fækka hevflugvjelum um fjórðung, beiti-
sldpum og tundurspillum (þ. e. cruisers og
destroyers) einnig um fjórðung. Tanka,
stórskotabyssur, eiturárásir og loftárásir á
að afnema. Þetta á að spara á skömmum
tíma, eða á næstu 10 árum, tólf til fimtán
þúsund miljónir dollara. Bandaríkjamenn
bjóðast þannig til þess, að eyða yfir 300
þúsund smálestum af þeim flota, sem þeir
þegar eiga og að hætta við byggingu á 50
þús. smálestum, sem þeir eiga óbygðar
samkvæmt leyfi í gildandi samningum, og
að fella niður notkun á 300 flugvjelum.
Tillögum þessum hefur verið tekið ærið
misjafnlega. Italir hafa fallist alveg á þær.
Bretar vilja að sumu leyti fara lengra og
einnig Þjóðverjar, en þeirra aðalkrafa er
sú, að allar þjóðir hafi jafnan rjett í her-
málum. Rússar hafa einnig lýst fylgi við
tillögurnar, en Frakkar eru alveg á móti
þeim og Japanar sömuleiðis að flestu leyti.