Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 20
I
151
hvar í litrófinu sú lína birtist, má marka
það, hverskonar efni hafði áhrif á ljósið,
eða dró það til sín.
Ef þessi athugun stenst að fullu, segir í
tilkynningu um þetta frá Carnegie stofn-
uninni á Mount Wilson, er hún merkileg
að tvennu leyti. Þetta er þá í fyrsta skifti,
sem nokkur lofttegund (gas) hefur verið
athuguð í litrófi nokkurrar jarðstjörnu.
Ennfremur bendir hún á það, að eitt frum-
skilyrði lífsins, eins og við þekkjum það á
þessari jörð, geti einnig verið fyrir hendi í
gufuhvolfi Venusar. Þetta er að vísu ekki
örugg sönnun þess, að lífið sje til þar, þótt
skilyrðið sje til, en það er líklegra eftir
en áður.
palestína íyrír Tiebreatíma
Meðal fornleifarannsókna þeirra, sem nú
fara víða fram í stórum stíl, eru rannsókn-
irnar í Palestinu ekki hvað síst merkilegar.
Þar hafa undanfarið starfað ýmsir merkir
fræðimenn, s. s. Sir Flinders Petrie (í
Gaza), prófessor Garstang (í Jerikó), faðir
Mallon (í Jórdan-dalnum) og Mr. Crawfoot
(í Samaríu). Jafnframt er haldið áfram
rannsóknum á ýmsum öðrum stöðum þarna
austurfrá, í Egyftalandi, Mesopotamiu og
víðar, svo að þessar rannsóknir styðjast
hver við aðra og munu sjálfsagt á sínum
tíma allar í einu varpa nýju og merkilegu
ljósi á fornsöguna, þegar úr þeim hefur
verið unnið. Margt af því, sem upp úr þeim
hefur hafst enn sem komið er, hefur varla
gildi fyrir aðra en sjerfræðinga eða verður
ekki metið eða skilið til fulls af öðrum.
Þó má geta þess, að í Palestinu hafa þess-
ar rannsóknir nú rakið söguna langt aftur
fyrir tíma Hebrea í landinu. Þar hafa fund-
ist leirker, sem talin eru frá því 5000 til
6000 árum f. Kr. eða eldri, eða 3000 til
4000 árum eldri en settir eru tímar Abra-
hams. Menn hafa hingað til þekt lítið sögu
iandsins helga, áður en Hebrear komu í
landið, en hún er nú meira og meira að
skýrast og afstaða Gyðinga til ýmsra ann-
ara þjóða. Menn hafa verið að vona, að
þeir fyndu þarna einhverjar skrifaðar
152
heimildir, en það hefur brugðist, en nokk-
uð af áhöldum og tóttum hefur fundist.
Margar eyður eru því enn í sögu Palestinu.
Nú í sumar hefjast samningar milli
ensku og skotsku kirknanna um meiri sam-
vinnu milli þeirra en verið hefur. Á aðal-
fundi skotsku kirkjunnar nú í júní flutti
yfirmaður ensku kirkjunnar, dr. Lang
erkibiskup í Canterbury, erindi, þar sem
hann bauð Skotum til samninga, en tók
það fram, að ekki ætti að semja um al-
gerða sameiningu eða sameiginlega stjórn
kirknanna, heldur um aukið samstarf í ýms-
um málum. Erkibiskupinn í York, dr.
Temple, flutti eirnig erindi og hvatti allar
kristnar kirkjur til samvinnu. Hann sagði,
að kirkjudeildirnar ættu að leita hinnar
sameiginlegu andlegu reynslu kristinna
manna að baki formsatriðum og orðatiltækj-
um og stofna sameinaða kristna kirkju. Hann
sagðist vona, að annað alþjóða kirkjuþing-
ið, sem á að koma saman 1937 og þegar
er undirbúið, mundi verða gott spor í átt-
ina til slíkrar kirknasamvinnu.
‘Nýjar atómrannsóknír
Or. Cockcroft og dr. Walton
Atómrannsóknirnar hafa verið stunað-
ar af miklu kappi undanfarið og eru nú ný-
lega komnar ,á mjög merkilegt stig með
tilraunum, sem tveir ungir fræðimenn í
Cambridge hafa gert, dr. J. D. Cockcroft
og dr. E. T. S. Walton. Þeim hefur sem
sje tekist að búa til rafmagnsáhald, sem
getur klofið atómið og þeir hafa í fyrsta
sinn í sögu vísindanna „sýnt það, hvernig
efni verður breytt í orku á vjelrænan hátt,
en hingað til hefur þetta einungis verið
gert með aðstoð svonefndra „radioactivra“
efna, segir annar enskur fræðimaður,
Crowter, um þetta. En í jörðinni er lítið af
slíkum efnum, svo að engar horfur voru á
því, að orka yrði unnin á þennan hátt til
nytja. Cockcroft og Walton hafa sýnt
LÖGRJETTA
'Krístnar kírkjur