Lögrétta - 01.03.1932, Page 14
LÖGRJETTA
140
139
‘Nýtt páfabrjef
Páfinn hefur nýlega gefið út hirðisbrjef
(Caritate Christi compulsi) þar sem hann
ræðir ástandið í heiminum í efnalegum og
andlegum málum og hvetur allar þjóðir og
alla flokka til einingar og sátta. Páfinn
segir, að orsök kreppunnar sje ágirndin,
fýknin í jarðneska fjármuni, sem Páll post-
uli kallar uppsprettu alls ills. Af þessu
sprettur, segir hann, skortur jafnvægisins í
heiminum og það, að auðæfi þjóðanna
hlaðast á fárra manna hendur, sem fara
með markaði heimsins eftir eigin geðþótta
og valda almenningi með því miklu tjóni.
Þetta vandræða ástand verður einnig, að á-
liti páfans, til þess að efla óánægju og
undirróður, kreppan er gróðrarstía bylt-
ingarkenninga og þeirra manna, sem brjóta
vilja niður röð og reglu þjóðfjelagsins og
trúna á guð. f þessu sambandi fer páfinn
hörðum orðum um kommúnista, einkum
guðleysisstefnu þeirra. Hann segir að öll-
um löglegum vopnum verði nú að beita til
varnar trúnni og þjóðfjelagslegum friði
og skorar á allar þjóðir að sameinast í eina
fylkingu gegn árásunum, „að sameinast og
rísa af öllu afli gegn því böli, sem er að
buga mannkynið og því ennþá meira böli,
sem framundan er“. Páfinn segir að krepp-
an, sem nú er, muni máske vera mestu erf-
iðleikar, sem á heiminum hafi dunið, síðan
syndaflóðið gekk yfir.
‘Kreuger
Sagan um Kreuger, sænska „eldspítna-
kónginn“, þótti til skams tíma einhver allra
merkilegasta saga og mesta æfintýri
í viðskiftalífi nútímans og fyrst eftir
að Kreuger skaut sig í París voru eftir-
mælin eftir hann full af lofi og viðurkenn-
ingu á vitsmunum hans og dugnaði og það
var talinn nýr vottur um ofurmagn heims-
kreppunnar, að jafnvel hann hefði hún bug-
að. í einu helsta tímariti Englands var
honum líkt við Karl XII. Svíakonung og
sögurnar um afreksverk hans voru rifjaðar
upp, en á síðustu árum hafa komið út um
hann fjórar eða fimm lofsamlegar æfisög-
ur á ýmsum málum. Þótt maðurinn hafi
verið sjerkennilegur maður og hæfileika-
maður, er þessu nú snúið við, eftir að svik-
semi hans fór að sannast, svo að á hann er
nú óspart velt sökunum og honum kent
um margvíslegan ófarnað, og ekki enn kom-
ið til botns í því hvað rjett er eða rangt í
því öllu. Hitt er víst talið, að Kreuger-mál-
in sjeu einhver stórfeldustu svikamál í
fjármálasögu heimsins. Hann falsaði sjálf-
ur ríkisskuldabrjef í stórum stíl, falsaði
bókhald, bjó til fyrirtæki í fjárdráttar-
skyni og beitti fyrir sig fávísum og fánýt-
um mönnum, sem voru viljalaus verkfæri í
höndum hans. Hann hafði þá einnig óskapa-
fje undir höndum og gat útvegað og lagt
fram hvert stórlánið á fætur öðru. Sjálfur
ljet hann fram á síðustu ár lítið á sjer
bera opinberlega, en bjó við rausn og ríki-
dæmi í New York og París og í Stokkhólmi
og virðist hafa verið nokkuð fjöllyndur í
kvennamálum. Hann talaði reiprennandi
ensku pg góða frönsku og þýsku og las all-
mikið nýtísku bókmentir. Hann var verk-
fræðingur og stofnaði árið 1907 ásamt Paul
Toll byggingafirmað Kreuger & Toll. Hann
fór ekki að fást við eldspítnaiðnað fyr en
1913, að hann tók við smiðjum föður síns
og kom með miklum dugnaði skipulagi á
sænska eldspítnaframleiðslu. Smásaman
jókst þessi starfsemi og var orðin alþjóð-
legt fyrirtæki, starfrækt mjög mikið fyrir
amerískt fje. Kreuger hafði umráð yfir 160
verkspiiðjum í 40 löndum og rjeð yfir
fjórum fimtu hlutum af eldspítnafram-
leiðslu heimsins og veitti 60 þús. manna at-
vinnu. Hann veitti 15 ríkjum stórlán gegn
ýmsum hlunnindum fyrir eldspítnahringinn,
oftast einkasölu. Þessi lán námu 1200
miljónum sænskra króna. Stærsta lánið
veitti hann þýskalandi (125 miljónir doll-
ara) og þegar Poincaré var að verðfesta
frankann veitti hann Frökkum 75 miljónir.
önnur stærstu lánin voru til Ungverjalands
36 inilj. dollara, til Rúmeníu 30 milj. og
Jugoslavíu 22 milj. Sumar tilraunir hans í
þessa átt mistókust þó (í Tyrklandi og
Ítalíu). Það munu hafa verið amerískir
fjármálamenn (frá Morganfj elögunum) sem
fyrst fengu alvarlegan grun um það, að