Lögrétta - 01.03.1932, Page 15
141
LÖGRJETTA
142
ekki væri alt með feldu hjá Kreuger og var
jafnvel í ráði, að kyrsetja hann síðast er
hann fór frá Ameríku. Ýmsir höfðu þó áð-
ur haft ótrú á skipulagi hans. Danski hag-
fræðingurinn Birch komst einu sinni svo að
orði, er hann lýsti afstöðu þjóðanna í
kreppunni, að Svíþjóð sigldi með Kreuger
í lestinni. Rússneska skáldið Ilja Ehren-
burg samdi rúmu ári áður en Kreugerhrun-
ið hófst, skáldsögu um lif hans og ljet hana
enda þannig, að hann skaut sig í París og
reyndist því sannspár.
Orkuver í "Jórdan
Vestræn vjelamenning hefur nú tekið í
þjónustu sína hina helgu á Jordan í Gyð-
ingalandi. Hún hefur nú verið virkjuð fyr-
ir atbeina Gyðingsins Pinhas Ruthenberg,
og vatn hennar er notað til þess að fram-
leiða rafmagn handa Palestinu og Trans-
jordaníu. Þetta er eitt af mestu vatnsvirkj-
unarfyrirtækjum heimsins og er nú (í júní)
verið að vígja það og byrja starfræksluna,
en mikill styr stóð lengi um fyrirtækið,
einkum 1922, er sjerleyfisveitingin til Rut-
henbergs var til umræðu í enska þinginu.
Formaður í stjórn fyrirtækisins er Reading
lávarður og einn af forstjórunum er James
Rothchild.
Til þess að framkvæma þessa virkjun
hefur þurft að breyta farvegi Jórdan( áin
hefur sjálf breytt sjer áður mörgum sinn-
um). Mestu vatnsmegni árinnar og ánni
Yarmuk, sem fellur í Jórdan, hefur nú ver-
ið veitt í stöðuvatn, eða stíflur, sem gerð-
ar hafa verið á ármótunum. Þetta er stærð-
ar vatn, sem þarna myndast, um hálfönnur
miljón teningsmetra af vatni, og sögð land-
prýði þarna í auðninni. En árnar sjálfar
fyrir ofan stíflurnar hafa verið sviftar feg-
urð sinni með virkjuninni, einkum Yarmuk-
fossarnir, sem þóttu ein mesta fegurð
landsins og fjellu fagurlega meðal olíuvið-
arrunna undir fornrómverskum brúar-
boga. Nú er lítið sem ekkert vatn í fossun-
um og Jórdan ekki annað en lítill áll, fyr
en fyrir neðan stíflumar og orkuverin, þar
fellur vatnið, eftir virkjunina, aftur í sinn
forna farveg, og á þá fremur stutt eftir
út í Dauða hafið, enda er áin öll fremur
stutt, um 55 mílur. Vatninu er veitt úr
stíflunum suðvestanverðum í gríðarmiklum
stokkum í allmikilli fallhæð, í turbínur
orkuversins fyrir neðan. Þær eru fjórar og
tvær af þeim er þegar farið að nota og þó
ekki full þörf á þeim báðum. Haifa, Jaffa,
Tiberias og Tell Aviv fá nú fremur ódýra
orku úr þessu veri. Menn gera sjer vonir
um það, að mestur hluti landsins geti feng-
ið þaðan ljós og hita, því að orkan er svo
að segja þrotlaus. Það er einnig ráðgert,
að nota megi orkuna og vatnið til áveitu í
stórum stíl, svo að breyta megi eyðimörk-
um Jórdandalsins í samskonar frjósemdar-
lönd, sem áður voru þar, svo að þarna megi
enn verða hið fyrirheitna land margra
manna, er fái þar nýja möguleika til nýs og
betra lífs en nú á hinum söguhelgu stöðv-
um.
Tjallgöngur
íRannsóhnír í ‘Ruwenaorí
Margar glæfraferðir hafa verið famar á
síðustu árum á ýms hæstu fjöll heimsins.
Fjallgöngur eru eftirlætisíþrótt margra
manna, sem sækjast eftir því sjer til gam-
ans og frægðar að klífa hæstu tinda og
hafa margir orðið að láta lífið í þeim æfin-
týrum. Meðal frægra fjallgöngumanna má
nefna páfann, hann gekk á torsótta tinda í
Alpafjöllum á yngri árum sínum. Frá síð-
ustu misserum eru alkunnar fjallgöngurn-
ar í Himalaja. Að sjálfsögðu eru þessar
fjailgöngur ekki farnar einungis í æfin-
týraskyni, en einnig til þess að afla sjer
vísindalegrar þekkingar. Einhver helsti
þessháttar fj allgönguleiðangur, sem starf-
andi er nú sem stendur, er Ruwenzori-leið-
angurinn undir stjórn Belgíumannsins de
Hemricourt de Grunne greifa. • Ruwenzori
er fjallgarður á landamærum Uganda og
Kongo í Afríku, milli Albert- og Edward-
vatna. Um þessi fjöll hafa frá fornu fari
gengið tröllasögur miklar og getur Ptolo-
meus þeirra, en Stanley sá þessi fjöll fyrst-
ur hvítra manna og lýsti þeim. Hæstu tind-