Lögrétta - 01.03.1932, Page 16
148
LÖGRJETTA
144
arnir eru yfir 16000 fet (ensk), eða meira
en helmingi hærri en Öræfajökull og jökull
á þeim. Margar ferðir hafa veríð farnar í
þessi fjöll síðan Stanley var þar og er einna
frægust ferð hertogans af Abruzzi 1906.
í ár klifu tveir Englendingar einn hæsta
tindinn. Belgiski leiðangurinn á að kort-
leggja vesturhlíðar fjallanna og gera jarð-
fræðilegar og dýra- og grasafræðilegar
rannsóknir. Þær eru erfiðar, bæði vegna
þess að þarna snjóar og rignir í 320 daga
ársins og ofsarok eru tíð, og blámennírnir
þama eru fullir hjátrúar og ótta við að
ganga á jökulinn.
'Hraðfrystíng
jNý geymsla á matvælum
Allir þekkja erfiðleikana á því að geyma
og flytja matvæli, svo að þau missi ekkert,
eða sem minst af næringargildi sínu. Menn
hafa notað ýmsar aðferðir, s. s. söltun og
kælingu ' eða ísingu og niðursuðu. Hver að-
ferðin um sig hefur sína kosti og galla.
Niðursuðan spillir oft miklu næringargildi,
söltunin og kælingin breyta vörunni að
ýmsu leyti, hún hefur ekki sama bragð og
sama gildi og nýmeti, en flestir vilja fá
matinn nýjan, enda er hann talinn hollast-
ur þannig. Mikil verðmæti fara forgörðum
i flutningum og við skemdir og mikil fram-
leiðsla verður af markaði vegna erfiðleik-
anna á því að koma henni óskemdri til
neytendanna. Menn hafa !>ví eðlilega gert
margar tilraunir til þess, að ráða bót á
þessu, en ekki tekist enn til fulls, þótt kæli-
aðferðirnar hafi á síðustu árum tekið mikl-
um framförum. En nýlega er farið að fram-
kvæma í allstórum stíl nýja kælingarað-
ferð, sem margir álíta að muni gerbreyta
og bæta geymslu og flutning matvæla og
valda því, að unt verði að fá nýmeti svo að
segja hvenær og hvaðan sem er, einkum á-
vexti, grænmeti, ket og fisk.
Þessi nýja aðferð er nefnd hraðfrysting,
og er með öðrum hætti og bygð á nokkuð
öðrum grundvelli en venjuleg frysting eða
kæling. Frystingin þarf að gerast mjög
fljótlega og þarf talsvert meiri kulda en
venjuleg frysting ( 35—40° Fahrenheit,
en þó stundum miklu minna, ofan í -KL0°
F. eða 24° Celsius). Eftir frystinguna þurfa
vörurnar einnig að haldast í miklu meiri
kulda, en við venjulegar aðferðir og til
geymslunnar þarf því sjerstaklega útbúna
nýja kæliskápa, þar sem kuldinn er 30
stig F lægri en í venjulegum kæliskápum.
Til þessa eru menn farnir að nota annað-
hvort vjelræna kælingu eða svonefndan
þurraís (kolsýrusnjó), sem er miklu fyrir-
ferðarminni en venjulegur ís. Til þess að
kæla og halda við jöfnum kulda í 20 smá-
lesta flutningavögnum, þarf 275 kg. af
þurraís, en ef sama vörumagn ætti að vera
kælt með venjulegum ís þyrfti af honum
2750 kg., eða 10 sinnum meira.
Þegar vörur eru hraðfrystar er tekinn
úr þeim allur úrganguv, bein, kjarnar o. þ.
h. og er þetta gert með vjelum í stórum
hreinsunarstöðvum. Þar verður þessi úr-
gangur svo mikill að unt er að hagnýta
hann til ýmislegrar vinslu, annarar en mat-
væla. Við þetta græðist tvent, annarsveg'ar
sparast flutningskostnaður á kældu vör-
unni, þar sem hún ljettist við úrganginn
og hinsvegar græðist arðurinn af því, sem
unnið er úr úrganginum. Menn gera ráð
fyrir því, að þar sem hraðfrysting fer
fram í stórum stíl nemi þessi gróði svo
miklu, að hann vegi svo að segja alveg upp
á móti því, sem hraðfrystingin er dýrari
en venjuleg frysting, svo að afurðaverðið
þurfi ekki að hækka.
Þessar eru sem sagt hugmyndir manna
um hraðfrystinguna og þær vonir, sem
menn gera sjer um hana og tilraunirnar,
sem þegar hafa verið gerðar í þessa átt,
þykja hafa hepnast vel. Samt gera þeir,
sem á þetta trúa, ekki ráð fyrir því, að
hraðfrystingin verði orðin almenn fyr en
eftir allmörg ár, því að það taki langan
tíma og kosti mikið fje að skifta um að-
ferðir og endurnýja kælitæki hjá smásölum
og einstaklingum. Það er sagt, að á bak við
þessar nýju hraðfrystitilraunir felist upp-
haflega einföld athugun á algengu fyrir-
brigði. Á einum stað í heimskautalöndunum
dró maður fisk einn vetrardag sem oftar og
rendi færi sínu í vök, sem hann hjó í ís-