Lögrétta - 01.03.1932, Page 24

Lögrétta - 01.03.1932, Page 24
159 LÖGRJETTA 160 Síöurður ‘Tyrírlestur eftír Uorst, Qíslason Um eitt skeið á fyrri hluta 19. aldar hygg jeg að ekkert skáld hafi verið vinsælla hjá almenningi hjer á landi en Sigurður Breið- fjörð. Hann var í ljóðagerð sinni í fylsta mæli við alþýðuskap, eins og það var á þeim tímum. Hann og nokkrir samtíðarmenn hans eru síðastir hinna mikilvirku og þjóðkæru rímnaskálda, sem öldum saman höfðu kveðið fyrir íslensku þjóðina og stytt henni stund- ir. Og hann mun vera mikilvirkastur og að mörgu leyti snjallastur þeirra allra. Eini maðurinn, sem lagt hefur fyrir sig rímna- kveðskap, svo að nokkru nemi, eftir daga Sigurðar og samtíðarmanna hans, er Símon Dalaskáld. En þegar hann kom fram á sjón- arsviðið, var gengi rímnakveðskaparins mjög fallandi, og það hefur ekki rjett við síðan. En Sigurður Breiðfjörð er ekki aðeins mikilvirkasta og merkasta rímnaskáld lands- ins. Hann er líka þar fyrir utan merkilegt ljóðskáld, og mörg af kvæðum hans og vís- um lifa enn og munu um langan aldur lifa á vörum íslensku þjóðarinnar. Sigurður er fæddur 4. marts 1798 í Rif- girðingum, en svo heita eyjar í Hvamms- fjarðarmynni og heyra til Breiðabólstaðar- prestakalli á Skógaströnd. Foreldrar hans hjetu Eiríkur Sigurðsson og Ingibjörg Bjarnadóttir, og er ekkert sjerlegt frá þeim að segja. Sigurður mun hafa alist upp eins og algengt var á þeim árum um almúga- börn á fremur fátækum heimilum. Faðir hans hafði verið greindur maður, en öl- gjarn um of, segir Sighvatur Grímsson Borgfirðingur. En snemma þótti bera á óvenjulegum gáfum hjá Sigurði og komu foreldrar hans honum því til kenslu til prestsins á Helgafelli, og var hann þar við nám í tvo vetur. Vildu þau setja hann til menta áfram, en gátu ekki sakir efna- skorts. Hann var yngstur af fjórum börn- um þeirra og, að því er Jón Borgfirðingur segir, hafði hann þótt nokkuð ódæll og ó- fyrirleitinn heima fyrir. En hann var lag- hentur og hneigður til smíða, og var þá það ráð upp tekið, að láta hann læra beyk- isiðn. Er sagt, að Bogi Benediktsen versl- unarstjóri í Stykkishólmi, sem var frændi Sigurðar í móðurætt, hafi átt hlut að því, og með styrk frá honum hafi Sigurður siglt til Kaupmannahafnar 16 eða 17 ára gamall. Þar var hann þrjú ár, tók próf í beykisiðn og kom að því loknu heim, sett- ist að á Isafirði og varð þar beykir og verslunarþjónn. Þrjár æfisögur Sigurðar eru til á prenti, en allar ritaðar löngu eftir dauða hans. Sú elsta er eftir Jón Borgfirðing og kom út 1878. Fylgir henni skrá yfir ritverk Sig- urðar, bæði prentuð og óprentuð. önnur er eftir Einar skáld Benediktsson og er fram- an við Úrvalsrit Sigurðar, sem Einar vann að og gefin voru út af Gyldendalsbóka- verslun í Kaupm.höfn 1894. Fylgja þeim skýringar og skrá yfir óprentuð ljóðmæli Sigurðar, eftir ólaf Davíðsson frá Hofi. En þriðja æfisagan er eftir Sighvat Gríms- son Borgfirðing, og er fyrirlestur, sem hann flutti í Reykjavík 1912 fyrir Alþýðu- fræðslu Stúdentafjelagsins. Jón Borgfirð- ingur studdist við óprentað æfiágrip eftir Gísla Konráðsson, sem var samtíðarmaður Sigurðar, en töluvert eldri, og eru æfiat- riði Sigurðar þar ítarlegast rakin, en sú bók mun nú vera mjög fágæt. Æfisögurnar bera þess vott, að Sigurður þótti lítill staðfestumaður og átti oftast við basl og fátækt að búa. Hann var talinn óreiðumaður í fjármálum, drykkfeldur í meira lagi og fjöllyndur í kvennamálum. Um alt þetta talar hann víða í skopi í kvæðum sínum, og má vel vera, að vegna þess hafi almannarómurinn gert meira úr öllu þessu en vert var. Sigurður var á sífeldu flökti, aldrei til langframa á sama stað. Eftir að hann kom úr siglingunni 1718 var hann fyrst þrjú ár á Vestfjörðum, þar næst þrjú ár við beyk- isstörf í Reykjavík, þá þrjú ár í Vest-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.