Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 26

Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 26
163 LÖGRJETTA 164 Svoldarrímur. Númarímur gefur Ólafur M. Stephensen sekreteri út í Viðey 1835. Jóms- víkingarímur og rímur af Fertram og Plató gefur Helgi prentari út í Viðey 1836. Fyrri Ljóðasmámuni Sigurðar gefa þeir út kaup- mennirnir í Stykkishólmi Ámi Thorlacius og Brynjólfur Benediktsen í Kaupm.höfn 1836. „Frá Grænlandi", sem er lýsing á landinu og frásögn um veru Sigurðar þar, eina ritið, sem til er eftir hann í lausu mál*, gaf Brynjólfur Benediktsen út í Kaup- mannahöfn 1836. En Konráð Gíslason hafði, að sögn, ritað það um og breytt mjög á því málfærinu. Rímur af Aristó- menes og Gorgi gefur Árni Thorlacius út í Kaupm.höfn 1836. Síðari Ljóðasmámun- ina gefur Helgi prentari út í Viðey 1839. Rímur af Valdimar og Sveini gefur Þor- steinn Jónsson stúdent og síðar kaupmaður út í Viðey 1842. Rímur af Líkafróni gefur Bjöm Pálsson hreppstjóri út í Viðey 1843. Þessar bækur voru komnar út að Sigurði lifandi. Eftir andlát hans komu út margir rímnaflokkar hans, áður óprentaðir, og var það einkum Jón Borgfirðingur, sem ljet sjer ant um útkomu þeirra. Páll Sveinsson bókaútgefandi í Kaupm.höfn gaf þar út 1862 „Nokkra smákveðlinga" eftir Sigurð. Síðustu útgáfur af ritum Sigurðar eru: Úrvalsritin, sem áður eru nefnd, Ljóðasmá- munir, sem Sigurður Erlendsson umferða- bóksali gaf út í 2. útgáfu í Reykjavík 1911 og 1912, og svo Númarímur, sem Skúli Thoroddsen gaf út. Og eitthvað fleira mun hafa komið út af rímum Sigurðar á síðari árum. Kveðskapur Sigurðar ber mjög með sjer einkenni þess tíma, sem hann verður til á. Sigurður er rúmum 11 árum yngri en Bjarni Thorarensen og 9—10 árum eldri en Jónas Hallgrímsson. Þeir nýju straum- ar, sem eru að koma fram í íslenskum kveðskap á þessum árum, ná ekki Sigurði nema að litlu leyti. Ilann er alþýðunnar barn og kveður eins og hún vill heyra. Þó hefur hann verið talsvert kunnugur dönsk- um kveðskap. Um það bera þýðingar hans vott. Af dönskum skáldum dáðist hann mest að Jens Baggesen og mun hafa fund- ið hjá sjer nokkum andlegan skyldleika við hann. Annars stendur Sigurður föstum fót- um í samtíð sinni á gömlum, þjóðlegum grundvelli. En nýju straumanna verður þó nokkuð vart í kveðskap hans. Hann yrkir ættjarðarkvæði og náttúrulýsingar, en þau efni heyra einkum til hinum nýrri kveð- skap. í kvæðinu „Fjöllin á Fróni“ yrkir hann í sama anda og Jónas Hallgrímsson, þótt málfæri og málblær sje þar á stöku stað fallið í fyrnsku. Hann yrkir þar undir sama bragarhættinum, sem Jónas síðar not- ar við kvæðið: „Þú stóðst á tindi Heklu hám“. Kvæði Sigurðar er eldra, því það er prentað aftan við Svoldarrímur, sem út komu 1833, meðan Sigurður var í Græn- landi, en hið alkunna veitslukvæði Jónasar er frá 1839. Jeg ætla að minnast nokkru nánar á þetta kvæði Sigurðar. Það byrjar svona: „Hvað fögur er mín feðra jörð, Fjallkonan gamla, kend við ísa, hvar tindar hátt úr hafi rísa, hvítfölduð teygja jökla börð, standa und hettum krystals kláru sem kempur, er gylta hjálma báru, gnapa framyfir gljúpan sjá; þau geislum hellir sólin á.“ Næstu erindin eru hárómantísk fornald- ardýrkun. En þar sem Jónasi verður líkt yrkisefni til þess að minna á, að nú sje „hún Snorrabúð stekkur“ o. s. frv., þá segir Sigurður: „Enn grær á vorri ættarjörð atorka sönn hjá traustum hölum, enn er glaðvært í grænum dölum, hvar gæfusæl sjer leikur hjörð, enn sjáum lax og silungs fansa í silfurelfum ijósuin dansa; fögur er sönglist fugla nóg um fjörðu, eyjar, dali’ og skóg.” Hann segir svo, að íslenska bændaþjóðin líkist enn því, sem hún var í fornöld, og endar með ávarpi til ættjarðarinnar: „Heill sje þjer, kæra feðra frón, fjöllin þín gegnum eilífð standi", o. s. frv. Ljómandi tilþrif í náttúrulýsingum eru
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.