Lögrétta - 01.03.1932, Síða 29

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 29
169 L ÖGRJETTA 170 að hann orti skopbrag um alt saman, og sýnir það ljettlyndi hans. Þau Kristín og Sigurður bjuggu á Gríms- stöðum á árunum 1837—41. Sigurður orti mikið á þeim árum, en búskapurinn gekk miður. Efni þeirra gengu mjög til þurðar, og 1841 urðu þau að bregða búi. Næsta ár fluttust þau til Reykjavíkur og bjuggu þar í mestu fátækt síðustu fjögur árin, sem Sigurður lifði. Hann dó í Reykjavík 21. júlí 1846 úr mislingum, sem þá fóru hjer yfir. Tvo sonu eignuðust þau Sigurður og Kristín, sem báðir voru látnir heita eftir danska skáldinu Jens Baggesen. Sá eldri dó á barnsaldri, en Jens Baggesen yngri náði fullorðins aldri og fór í siglingar. Geta þeir, sem skrifað hafa um Sigurð, ekki nánara um þennan son hans. En í skrá yfir rit Sigurðar má sjá, að hann hefur gefið út í Kaupmannahöfn 1857 „Gísla rímur Súrssonar“ eftir föður sinn. Stjúpsynir Sig- urðar tveir tóku upp Breiðfjörðsnafnið, urðu myndarmenn og ólu aldur sinn 1 átt- högum foreldra sinna. Bólu-Hjálmar segir í erfiljóðum eftir Sig- urð: „Breiðfirðingur allan aldur angurboða þoldi megn; heiðnyrðingur heimsins kaldur hamingjuvoðum stóð í gegn." Og þetta hefur jafnan kveðið við um Sig- urð; hann hefur verið talinn olbogabarn hamingj unnar, eða ólánsmaður, og þá eink- um vitnað í skort hans og bágindi síðustu æfiárin í Reykjavík, er heilsa hans og vinnuþrek var farið að bila. En mundi það mat á láni og óláni vera alls kostar rjett? Sigurður segir sjálfur: „Jeg er mæðumaður, meir en satt er það; margt vill ama að, en er þó oftast glaður." Þessi vísa er líka eftir hann: „Oft eru skáldin auðnusljó, af því fara sögur, en gaman er að geta þó gert ferskeyttar bögur.1'1 Það er rjett, að hann nær ekki metorð- um, völdum nje auði hjer í lífinu, og sömu- leiðis mun það líka vera rjett, að hann lifði að síðustu við fullkominn skort, og er leitt til þess að vita. En á hitt er líka að líta, að hann lifði alla æfi sína fyrir það eitt, sem honum sjálfum va^ dýrmætast, fyrir kveðskapinn. Og fyrir hann náði Sig- urður almennri viðurkenningu og vinsæld- um. En var það ekki einmitt þetta, sem hann sóttist eftir og mat mest? Það er óvíst að valdamennirnir og auðmennirnir, sem lifðu samtíða honum, liafi margir ver- ið ánægðari með hlutskifti sitt en hann, og fæstir þeirra hafa látið eftir sig verk, sem orðið hafa langlífari en verk Sigurðar. Hann segir í einum af rímnamansöngvum sínum: „Kvæðin jeg af sulti syng svo jeg fái staup og bita.“ En slík ummæli mega menn ekki taka of alvarlega. Hann valdi sjer þetta hlutskifti sjálfur og hefur líklega, eins og segir í vís- unni hjer á undan, oftast verið glaður, þótt skrykkjótt gengi. Hann var ljettlynd- ur, og jeg hygg, að miklu oftar hafi það verið ljett og hlý gola frá samúð almenn- ings, sem bljes um voðir hans, en kaldur heiðnyrðingur. Kveðskapur Sigurðar hefur haft töluverð áhrif á nýrri tíma skáld. Páll Ólafsson hef- ur án efa mikið af honum lært, og flestir okkar helstu ferskeytlusmiðir. Steingrímur Thorsteinsson, sem ólst upp í nágrenni við hann, hafði miklar mætur á kveðskap hans. En fæstir munu hafa dýrkað Sigurð á sið- ari tíma meira en Þorsteinn heitinn Er- lingsson. Hann las rímur hans og kvæði aftur og aftur, ár eftir ár, og kunni mikið í þeim. 0g hafi nokkurt eitt skáld öðrum fremur átt þátt í því, að kenna honum braglist, þá er það Sigurður Breiðfjörð. Þorsteinn minnist hans í kvæðinu „Ljós- álfar“, er hann lýsir því, hvernig skamm- degisdrunginn leggist yfir sig og hvað helst megi ljetta honum. „Loks á Byron engan yl“, segir hann, „ekki Njála heldur“. En þá grípur hann til rímnanna og segir: „þær eru sumar lærðar lítt, leita skamt til fanga,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.