Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 34

Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 34
179 LÖGRJETTA 180 Trygð víð andann Qoethe-minníng eftír Gunnar Gunnarsson Gunnar Gunnarsson skáld var fulltrúi Is- lands á hátíðinni, sem haldin var í Weimar til minningar um það, að hundrað ár voru liðin frá dauða Goethe. Hann flutti þar ræðu þá, sem hjer fer á eftir: Trygð við andann — og trygð við hvað sem er, táknar það, að við trúum á það. Þessi orð gætu verið einkunnarorð hinnar einstöku hátíðar hjer í Weimar, einkunn- arorð allrar afstöðu Þýskalands til síns mikla, síns mesta sonar, og þau geta verið það af því að þau gætu verið og eru ein- kunnarorð þess manns, sem dó á þessum degi fyrir einni öld, þess manns, sem verð- ur ódauðlegur um allar mannlegar aldir fyrir starfandi og skapandi anda sinn. Jeg segi trygð við andann. En samt gnæfir nú verk hins ódauðlega skálds sem einn af fá- um tindum upp úr heimsvíðu syndaflóði af svikum og afneitun á þeim anda, sem var og er hans andi: hófseminnar og þekking- arinnar ósveigjanlegi andi. Já, en hann gnæfir samt upp þessi tindur, gnæfir geig- laus yfir gruggugt umhverfið. Andinn er það eina mannlega á jarðríki, sem ekkert þarf að óttast. Hann mun rísa upp endur- fæddur úr öllum gnýjandi og gjálfrandi stormum blóðsins og holdsins. Hann er ó- forgengilegur, ósigrandi, eilífur. Og ófor- gengilegur, ósigrandi og eilífur er maðurinn hvar og hvenær sem hann fylgir andanum, þá verður vesælt holdið smátt eins og það er að rjettu, þá myndast jafnvægi, sam- ræmi, sæla, sú sæla, sem einungis auðnast hinum bestu mönnum og mestu öndum, eins og Goethe, og auðnast aðeins fyrir trygð við andann. Það verður einnig að teljast með trygð við andann, að Þýskaland hefur óskað þess að okkar litla land, hin fjarlæga klettaey, ætti fulltrúa á þessum hátíðisdegi, trygð við andann á smærri en hversdagslegri hátt en hitt, en þó enganveginn lítilsverðan hátt, því að það sem stórt er, er sett saman úr eintómu smáu. Við Islendingar eigum í heiminum og meðal heimsins þjóða enga vegsemd aðra en andans vegsemd. Við er- um svo fáir að höfðatölu, að við erum rúm- lega helmingi fleiri þúsundir en Þjóðverjar eru miljónir, svo fáir, að ef til dæmis íbú- arnir í Weimar, sem ekki mun talin nein stórborg að höfðatölu, flyttust til landsins, mundi það auka fólksfjöldann um 50%. Og við erum svo fátækir að auð og veldi, þeim auð og því veldi, sem á veltur í veröld nú- tímans, að þótt aðrar þjóðir eigi, jeg veit ekki hversu margar blýkúlur á hvert höfuð mannmergðar sinnar, þá eigum við ekki eina. Við eigum ekki og höfum aldrei átt vjelbyssu og sprengiefni þekkjum við ekki önnur en þau, sem brjótast úr brennisteins- iðrum jarðarinnar í hverum og leirhverum. Það getur því ekki verið vegna ytri dýrðar okkar að við verðskuldum heimboðið hingað í dag. Við erum ekki meðal þeirra ná- granna, sem hættulegt er að gleyma, eða gagnlegt að eiga sjer að góðvinum. Enginn þarf að hafa áhyggjur af því, þótt hann láti okkur sigla okkar eiginn sjó, — og það gerum við reyndar. En Þýskaland hef- ur ekki gleymt okkur þrátt fyrir efnalegt virðingaleysi okkar og það hefur fallið í minn hlut, fyrir hönd íslensku stjórnarinn- ar, að færa hinum heiðruðu bjóðendum virðingarfylstu og hjartanlegustu þökk, þökk og kveðju íslands. Þegar jeg hef nú lokið þessu langar mig til þess, að mega með örfáum orðum gera grein fyrir því, hversvegna jafn lítil þjóð og við erum, fátæk og fámenn bændaþjóð á afskektri ey, álítum að við þurfum ekki að fyrirverða okkur fyrir það, að taka á móti hinu vingjamlega boði og koma hing- að í dag, til Goethe-hátíðar á þessum virðu- lega stað. Það er ekki einungis, og jafnvel ekki fyrst og fremst, vegna afstöðu okkar til Goethe, en þó einnig hennar vegna. Jeg er ekki lærður maður og þetta er ekki fyr- irlestur, og þess vegna verður ekki gerð hjer grein fyrir áhrifum Goethes á íslensk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.