Lögrétta - 01.03.1932, Síða 84

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 84
279 LÖGRJETTA 280 Tíndafjöll Það var í haust að jeg var beðinn að koma iipp á Land með bíl, sem átti að fara þangað seinnipart dags. Það er langt síðan að mjer fór að þykja gaman að því að fá tækifæri til að koma upp á Land í nánd við tignar- legu fjöllin, sem jeg lærði þegar jeg var ungur, að líta upp til og dáðst að. Alt- af finst mjer Hekla jafn tignarleg, fögur og eitthvað seiðandi, þegar jeg er kominn í mátulega nálægð við hana. Haustblærinn er kominn yfir alt og kvöldskuggarnir altaf að nálgast. Bíllinn keppist við að komast sem lengst á meðan ljós er á lofti. Landsveit er nú að byrja. Það birtir eitthvað upp í bílnum, jeg fer að horfa út um gluggann. Birtan stafar frá sólskinsbletti, sem lent hefur á Tindafjöllum og hann situr þar kyr. Oft hef jeg farið þessa leið áður, en aldrei hef jeg sjeð Tindafjöllin í öðru eins skrúði og nú. Það var eins og öll fegurð þeirra og mikilleiki drægist þarna saman í einn sólskinsblett. Tindarnir urðu líka allir í einu brosi og lífið sýndist sindra úr augum þeirra. Hið glaða skin kvöldsólarinnar hefur margan glatt, svo að sál hans hefur lyftst til flugs. Það er því líkast, sem tindarnir vildu nota sjer þessa stuttu en dýrmætu-4kveðju- stund. Þeir skreyttu sig alla með logagylt- um fjöðrum kvöldsólarinnar og voru lítillát- ir sem börn. Þeir smíðuðu sjer í skyndi skrautlegt hús, þarna á móti kvöldsólinni. Nú mátti engum geisla glata, því nótt og vetur voru í nánd. Það eru ekki altaf sólskinsdagar hjá þeim tindunum þeim arna. Þegar þeir hafa verið að gá til veðurs og líta upp yfir fjöllin, hafa þeir oft fengið að kenna óþyrmilega á of- stopa norðanvindanna, því þeim sýnist aldrei vera hægt að gera til hæfis. Þegar tindarnir hafa verið að gá til verðurs og þeir hafa ekki sjeð neitt uggvænlegt, hafa þeir orðið fyrir kynstrum af snjó, sem norðan- vindarnir hafa skelt þeim ómjúklega á vanga og reyndu um leið að kæfa þá í snjó. En tin iarnir hafa ekki farið sjer óðslega að, altaf verið jafnrólegir og ekki haggast, hvaö sem óróa stormanna hefur liðið. Og undar- legt var það, að aldrei tókst vindunum að færa tindana í kaf, því þeir sópuðu öllu í burtu með sjálfs sín hala, sem þeir vildu hafa til þess að koma tindunum í kaf. Stormamir voru eins og hinn óróagjarni æsingamaður, sem aldrei gætti sín fyr en hann var búinn að brjóta það niður, sem hann vildi upp byggja. Alt líf leitar að meira ljósi. Jeg hef haft ánægju af að veita öræfahimbrimanum eft- irtekt þegar jeg hef komið þar inneftir. Þegar hann er orðinn leiður á dimmviðrinu í kringum sig tekur hann sig upp, ef hann sjer einhversstaðar sólskinsblett í lofti eða á láði, og flýgur þangað með hreimsterkum vængjadyn og fögrum söng. Svo flýgur hann þar um fram og aftur, þar sem sólskinsblett- irnir eru, til að svala ljósþrá sinni. Það er eins og hann kunni að meta glöggt hvað sólarljósið er þýðingarmikið og nauðsynlegt lífi hans. Og hann fyrirverður sig ekki neitt þarna úti í öræfaþögninni, að syngja sól- fögru ljóðin sín af fullum hálsi. Þeim, sem eru viðkæmir fyrir því, hvað öræfaþögnin getur orðið þung og tilbreytingalaus verður ljúft að hlusta á þróttmikinn og fagran söng fylla upp hið auða rúm. Eftir því, sem ein lífvera er þroskaðri að viðkvæmni, eftir því vex ljósþrá hennar og glöggleiki fyrir áhrifum sólarljóssins. Sum- ir draga dár að viðkvæmni annara, en ekkert er þó betur fallið til að lyfta sálinni á hærra svið og auka gróður hennar, en þroskasæl viðkvæmni. Þeir, sem eru sterkastir og stranglega rjettlátastir, eru oft hinir auð- virðilegustu þjónar falskrar ímyndunar. Hreinleiki lífsins er ekki hávær eða með mikilfenglegum brigðum, sem er hrúgað upp til að láta bera sem mest á sjer; hann er eins og hinn hægfara straumur lindarinnar, sem á upptök sín í afdal fjalla og fer um farinn veg og græðir alt er hún fer um. Hún er eins og ljósið, sem alt lífgar og reisir við lamaðan stofn. Ólafur ísleifsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.