Lögrétta - 01.03.1932, Síða 87
285
LÖGRJETTA
286
stefnu safnsins og gefur hugmynd um
starfsmöguleika þar í hverri grein. Safnið
hefur eignast á árinu rúml. 254 erlend
skáldrit og um 130 sögurit. Um heimspeki
hafa verið keypt 49 rit (53 bindi og 3
tímarit), um trúarbrögð 24 rit, um uppeldi
og skóla 24 rit og 3 tímarit, (af þessum
ritum eru 14 skýrslur og fjelagsrit), um
verslunarmál 9 rit, þar af 3 skýrslur, um
iðnað 2 rit, um búnað 6 rit, um fiskiveiðar
ekkert rit, um taí'l 131, um efnafræði 2 og
eðlisfræði 7, um málfræði 27 rit).
Þetta ósamræmi í ritaukanum sprettur
sjálfsagt að nokkuru leyti af gjafabókun-
um. Margar nýju bækurnar eru nauðsyn-
legar og ágætar. En gloppurnar í safninu
eru ýmsar tilfinnanlegar. Jafnvel í nor-
rænum fræðum er bókaskortur. Tímarita-
eignin hefur aukist og batnað. Þessar at-
hugasemdir eru til þess gerðar að benda
á nauðsyn þess, að Landsbókasafnið sje
eflt betur en orðið er og starfrækt sem
best. Einfaldasta og ódýrasta leiðin til þess
er sú, að gera það að einum lið í allsherjar
fræðastofnun, eins og þjóðfræðadeild há-
skólans ætti að vera samkvæmt tillögum
]>eim, sem áður hafa komið í Lögrjettu.
IÐNSÝNING er nú haldin hjer í Reykja-
vílv. Ilún er stór og fjölbreytt og smekk-
lega frá henni gengið, nema helst tveimur
stofum. Það er furðulegt hversu margt er
nú íramleitt hjer innanlands, sem fyrir fá-
um árum þurfti að sækja til útlanda og
fckki síður ánægjulegt hversu margt af
þessari framleiðslu er vandað og smekk-
legt, þótt sumt sje ennþá nokkuð dýrt.
Iíúsgagnasmíði er t. d. orðin mjög prýði-
leg, sjerkennileg og falleg silfursmíði er
stunduð hjer og járnsmíði hefur fleygt
mikið fram. Handgert einkabókband getur
verið hjer mjög gott, en vjelband ekki
ávalt að sama skapi smekklegt enn. Svona
mætti fleira telja, ekki síst matvælafram-
leiðslu. Sýningin er íslenskum iðnaðarmönn-
um til sóma.
FRÚ GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR fyrv.
bæjarfulltrúi, frá Presthólum, hefur gefið
út ritling um Hnífsdalsmálið, og einnig
flutt um það o. fl. fyrirlestra hjer í bæn-
um, sem þótt hafa skörulegir. Hún vill fá
Hnífsdalsmálið tekið upp til dóms að nýju,
með því að þau málgögn, sem henni finst
þar mest um vert, hafi ekki komið nógu
ljóst fram áður, og rakti hún feril máls-
ins í fyrirlestrinum skýrt og greinilega,
þótt í stuttu máli væri. Síðari hluti fyrir-
lestrarins var svar til frk. Katrínar Thor-
oddsen upp á fyrirlestur, sem hún hafði
áður haldið og hann síðan verið prentaður.
Mótmælti frú Guðrún þeim fyrirlestri mjög
ákveðið og taldi hann siðspillandi. Hjer skal
ekki út í það farið, að dæma milli þeira
frú G. B. og frk. K. Th., því til þess þyrfti
langt mál. En það undruðust margir, sem
hlýddu á fyrirlestur frú G. B., sem nú er
komin undir áttrætt, hve kröftugur hann
var og snjallur.
LÝSI. Islendingar hafa framleitt talsvert
mikið af lýsi og flutt út. Verðið hefur num-
ið um 10 miljónum króna (1928) og sam-
kvæmt síðustu skýrslum var útflutningur-
inn 4.866.000 kg. þorskalýsi og 6.346.000
kg. síldarlýsi. Ekki hefur þó orðið úr þessu
eins góð eða arðvænleg atvinnugrein og
ætla mætti að skilyrði væru til, enda lítið
sem ekkert gert til þess, að rannsaka nýja
möguleika á þessu sviði. Nú hefur Ásgeir
Þorsteinsson verkfræðingur, sem sjerstak-
lega hefur lagt stund á efnafræði, byrjað
vísindalegar rannsóknir á íslenska lýsinu,
sjerstaklega á fjörefnagildi þess og vinslu-
möguleikum. Hann hefur komist að þeirri
niðurstöðu, að islenskt lýsi sje fjörefnarík-
ara en norskt lýsi og Nýfundnalandslýsi og
álítur að góðar horfur sjeu á því, að hjer
megi framleiða ágætt meðalalýsi og yfir-
leitt hafa meiri not af lýsinu en áður. Þess-
ar athuganir eru merkilegar og verður
væntanlega haldið áfram og hafíst handa
um framkvæmdir á vinslu meðalalýsis.
LEIFUR HEPNl. Líkneski Leifs hepna
hefur nú verið afhjúpað á Skólavörðuhæð-
inni í Reykjavík. Gerði það Mr. Coleman,
sendiherra Bandaríkjanna, en af íslands
hálfu töluðu forsætisráðherrann, Á. Ás-
geirsson og borgarstjórinn, Kn. Zimsen.