Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Síða 14

Eimreiðin - 01.05.1902, Síða 14
94 GAMALT KVÆÐI. Hér í sýslu var hent mikið gaman að því, að bóndi einn átti að hafa skrifað bók, sem hafði að innihaldi þetta og ekki annað: »Hvítur hrútur, svartur hrútur«. Pá var þetta kveðið. »Hvítur sauður, svartur sauður« Sí-ung rót í lækjarbakka. Upp með læknum landsins auður: Ljónstygg trippi ýfa makka; sáu aldrei klif né klakka; klippa gras í brekkuslakka; tipla snögt með fimum fótum, fleygja toppnum bak við eyru, lúta ofan að lækjarseyru, lyppa skrokkinn fram hjá gjótum. Kindur hlíðar allar upp um una á börðum töðugrænum, brokka við og vagga huppum, viðra móti dalablænum. Pað er kyljukast frá sænum. Kýr ’ið neðra; ferginshagar væta silkisveipótt speldi. Sæl og mettuð beljan vagar mjólkurfull á kyrru kveldi. Kongulær í víðirunnum; blátt og ljóst að úthafs unnum; yndiskvak í fuglamunnum; lifandi mergð á landsins grunnum. Landið sjálft með sólskin yfir sjó í kring. Vort feðrahauður heill sé þér meðan hyrndur lifir í hlíðunum hvítur og dökkursaLiður. ÚR SMALAVÍSUM Nú skal ég yrkja, meðati sólin sígur og sjór og himin titra af geislakossum. Eg uni um stund hjá æsku minnar fossum. Par sé ég enn, hvar fugl um móa flýgur. Pá fanst mér stundum hlaup mitt vera flug. Og undir hverjum fossi fögur gýgur, sem framtíð þjóðar lék á bláa strengi. Peir söngvar voru í ungum hetju hug og háir tónar spáðu auðnugengi. En sumir dýpri eins og ástam il, þá ýrðist dögg úr fossinum í hvatnminn; það voru landsins eigin ástamál til allra vor hjá fossinum við hvamminn: »Eg elska börn mín lengi, letigi, lengi!« Pá ýrðust tár um unglings vanga mína, því einstaklingsins barnshönd vinnur lítið; en sæi ég núna suma böðla þína

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.