Eimreiðin - 01.05.1902, Blaðsíða 12
92
ekki að fara lengra út í þennan mentunarsálm, heldur snúa mér
að aðalefhinu.
Hér í sýslunni eru fleiri skáld, en þau, sem hér eru sýnd.
Sérstaklega hefði verið ástæða til að sýna Jón gamla Hinriksson
og Porgils gjallanda. En bæði er það, að þeir eru nokkuð kunnir,
og í öðru lagi er torvelt að gera grein fyrir þeim í stuttu máli.
Eg tek því það ráð, að leíða yngrí mennína fram á sjónar-
sviðið — eða sýnishorn af þeim; því reyndar eru fleiri í þeim
hóp, en hér eru taldir, sem haldið geta á hljóðfæri Braga.
I.
JÓn Þorsteinsson, bóndi á Arnarvatni í Mývatnssveit. Hann
er um fertugt, óframfærinn maður og næstum því feiminn. Hann
hefir ort fremur lítið og stundum leikið sér að því, að herma eftir
Grallarahöfundunum gömlu og Vísabókaskáldunum. — Stundum
líkist hann Páli Ólafssyni, þegar hann yrkir ferskeyttar vísur, eins
og sjá má á vísum þeim, er hér fara á eftir. Pó er ekki svo að
skilja, að Jón stæli Pál. Hitt mun nær sanni, að sporin verða lík
vegna þess, að báðir stíga létt niður á þjóðlegum grundvelli hug-
ljúfrar hagmælsku. Og þegar tveir menn hafa málið og rímið á
valdi sínu og y.rkja um sama efni, lætur að líkindum, að tungu-
takinu svipi saman.
Ég tek til dæmis þessa vísu:
Vorið dregur eitthvað út hefir geymt þar grænan kút
undan frosnum bakka: — gef mér nú að smakka!
GAMLI GRÁNI.
Dimm er lifsins dómagjörð, Mun sem fyrri fara á storð
dul er að ráða hana; frægðin lýð úr minni;
hlumdi skot og hné að jörð því skal búa örfá orð
hesturinn máttarvana. offruð minning þinni.
Líkt og báru-blak er dvín, Við höfum líka saman sælt
búin er þín saga; sólar og klaka stundir;
aldrei líta augu þín ég hef löngum bak þi}t bælt
yfir grænan haga. böggum þínum undir.