Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Qupperneq 31

Eimreiðin - 01.05.1902, Qupperneq 31
[ I 1 hér liggur fyrir, hefi ég skeytt saman alla þessa smáuppdrætti og aukið þá mjög og lagfært. Meðan rannsóknirnar stóðu yfir kom út 1886 jarðfræðis-uppdráttur íslands eftir K. Keilhack, þýzkan jarðfræðing (mælikvarði 1: 1,000,000); á honum sameinaði höf. nokkrar athuganir ýmsra jarðfræðinga við athuganir sínar sumarið 1883 og rannsóknir mínar á árunum 1881 —1885, en af því þá var enn eftir mikill hluti lands- ins ókannaður, gaf uppdráttur þessi* 1 eðlilega ónóga hugmynd um jarð- fræðisbyggingu landsins í heild sinni. Sama ár lét hinn norski jarð- fræðingur Amund, Helland prenta uppdrátt yfir Vestur-Skaftafellssýslu eftir athugunum þeim, sem hann hafði gjört á hraðri ferð um það svæði 1881, en uppdráttur sá er mjög ófullkominn, bæði að því er snertir mælingu og jarðlaga-útbreiðslu, þó ýmislegt sé þar nýtt og þýðingarmikið, sér- staklega gígaröðin 1783.2 3 Ennfremur lét Fr. Joknstrup á sama ári prenta jarðfræðisuppdrátt af litlu svæði norðaustan við Mývatn.K Pá eru taldir allir jarðfræðisuppdrættir af íslandi, sem hingað til hafa komið út. Á hinum nýja jarðfræðis-uppdrætti, sem hér liggur fyrir, er út- breiðsla bergtegundanna um alt land sýnd með ýmsum litum, en rauð merki ýmislega löguð tákna sitthvað annað, er jarðfræðislega þýðingu hefir, t. d. eldfjöll af ýmsu tægi, ísrákir, steingjörvinga o. fl. Neðan við uppdráttinn eru skýringar á litum og jarðfræðisteiknum.4 * * * * 9 Blágrýti (basalt, trap) tekur yfir langmest svæði á íslandi, Vestfirði, Austfirði og mestalt Norðurland; það er elzta bergtegund á landinu og um leið ein af hinum yngstu, því blágrýtisgos hafa haldist fram á vora daga, þó eigi séu þau eins mikilfengleg eins og í fyrndinni. Blýgrýtisfjöllin eru af bygð í Vestur-Skaftafellssýslu á undan Skaftárgosum 1783 (Geogr. Tidskr. XII, bls. 228), af Hitalaug við Torfajökul (s. st., bls. 223), af Hveravöllum (Ymer, Stock- holm 1889, tab. 3), af héraðinu kringum Brjámslæk á Barðaströnd (Geol. Fören. Förhandl. XVIII, bls. 141) o. fl. 1 Zeitschrift der deutschen geologischen Gesellschaft, 38. Bd. 1886, tab. 8. 2 Lakis Kratere og Lavaströmme. Kristiania 1886. 3 Om de vulkanske Udbrud og Solfatarerne i det nordostlige Island (Naturhist. Forenings Festskrift. Kbhavn 1886). 4 Fyrir þá, sem ekki skilja ensku, þýði ég hér skýringar þessar. i° Basalt = blágrýti; 2° Liparite and Granophyre = líparít og granófýr; 30 Palagonitic Breccia, Tuffs and Conglomerats = þussaberg, móberg og hnullungaberg; 40 Gabbró; 50 Pliocene (Crag); 6° Doleritic Lava, pre-glacial and glacial = dóleríthraun (grásteins- hraun) frá ísöld eða eldri; 70 Postglacial Basaltic I.ava = blágrýtishraun yngri en ísöld; 8° Postglacial Liparitic Lava = líparíthraun (hrafntinnuhraun) yngri en ísöld; 90 Volcanic Ash, Blown Sand, Móhella = eldfjallaaska, roksandur og móhella; io° Diluvial and Alluvial Accumulations in the Highland = ísaldarruðningur og ár- burður á hálendinu; n° Diluvial and Alluvial Accumulations in Valleys and Low- lands = ísaldarruðningur og árburður í dölum og á lálendum; 120 Sandar; 130 Glaciers = jöklar; 140 Lignite = surtarbrandur; 150 Fossil Plants = steingjörvar jurtir; ió° Fossil Shells = steingjörvar skeljar; 170 Raised Beaches = fornir malar- kambar yfir fjöruborði; 180 Highest Limit of Submergence = hæstu sævartakmörk; 190 Striæ = ísrákir; 200 Hot Springs = hverir og laugar; 210 Solfataras = brenni- steinshverir; 220 Mineral Springs = ölkeldur; 23° Volcanoes composed of Tuff and I>ava = eldfjöll samsett af móbergi og hraunum; 240 Lava Domes = bunguvaxin eldfjöll (dyngjur); 250 Glacial Volcanoes = ísrákuð eldfjöll; 26° Glacial and Recent Volcanoes = ísrákuð eldfjöll, sem líka hafa gosið eftir ísöld; 270 Rows of Volcanic Cones = eldgígaraðir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.