Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Page 33

Eimreiðin - 01.05.1902, Page 33
hefir landið sprungið í miðju og gjár myndast í jarðarskorpunni með sömu stefnum og á sama svæði eins og eldgjár þær, er gosið hafa eftir landnámstíð. Móberginu mætti skifta í deildir eftir aldri, því sumt er mjög gamalt, sumt mjög ungt, jafnvel myndað eftir ísöld; skifting þessa er þó eigi hægt að sýna á kortinu, til þess eru móbergshéruðin enn eigi nægilega rannsökuð. Ofan til í móberginu er hér og hvar hnull- ungaberg og sumstaðar í því og móberginu hafa fundist ísrákaðir steinar, fornar jökulmenjar. Gabbró hefir hvergi fundist í föstu bergi nema austur í Lóni, í Eystra- og Vestrahorni. Lausa gabbró-mola hefi ég þó víða fundið á söndurn sunnan undir Vatnajökli, svo líklegt er að fjöll úr þessari bergtegund sé sumstaðar undir jöklinum, Dólerít- hraun (grásteinshraun) taka yfir afarmikið svæði um miðbik landsins, oftast þar sem móberg er undir, en sumstaðar hafa þau runnið yfir blá- grýti. Flest grásteinshraun hafa runnið fyrir ísöld og eru fægð af jökl- um, en sum hafa líklega runnið á ísöldinni sjálfri. Þegar hraun þessi runnu, var yfirborð landsins víðast hvar svipað því, sem nú er, en sum- staðar hafa þó allmiklar landslagsbreytingar orðið síðan. Á ýmsum stöðum hefi ég fundið eldvörp þau, sem grásteinshraunin hafa runnið úr, og hefi ég merkt þá staði á uppdrættinum; eldfjöll þessi eru víð- ast hvar kúpumynduð og sumstaðar sjást ennþá uppvörpin, eldgígir með ísnúnum röndum. Sum af hinum stærstu og yngstu eldfjöllum, hafa byrjað að gjósa fyrir ísöld og haldið því áfram um ísöldina og fram á vora daga (t. d. Eyjafjallajökull og Öræfajökull). f’á eru ennfremur sýnd á uppdrættinum hin nýju hraun og ná þau yfir miklu stærra svæði en sýnt er á hinum forna uppdrætti ís- lands, og er það eðlilegt, því bæði hefi ég fundið ýmsar nýjar hraun- spildur á öræfum og sérstaklega grenslast eftir útbreiðslu þeirra og tak- mörkum og auk þess hefi ég, eins og til stóð, sett á kortið þau hraun í bygðum, sem hulin eru jarðvegi að miklu eða öllu leyti, en þau vantar víðast á hinum eldra uppdrætti. Þá er roksandur settur á uppdráttinn með sérstakri litbreytingu; hann er af ýmsu tægi, oftast myndaður af' sundurliðuðu móbergi, stundum af nýrri eldfjal aösku og á stöku stað er hann blandaður þurrum ísaldarleir og ljósum líparít- vikri. Þar sem roksandur hefir stöðvast á sléttlendum eða í dölum og lagst í lög, hefir víða myndast móhella og er sú jarðmyndun hér og hvar um landið, en þó einna mest á Rangárvöllum. Á uppdrættinum er með sérstökum litum sýndur ísaldarruðningur og árburður á hálendi og í dölum og á láglendi, þar sem þessar myndanir alveg hylja bergtegundir þær, sem undir liggja; annars er meira og minna af slíku lausagrjóti nærri alstaðar á landinu; það er yngst og hylur því eins og þunn kápa allar aðrar bergtegundir. Lausagrjótið er af ýmsu tægi: urðir, möl, leir og leðja; sumt hefir orðið fyrir áhrifum jökla, sumt hefir myndast í ám og lækjum; efnið er sambland allra bergtegunda, sem til eru í landinu, og auk þess eru mýraflákar og jarðvegur allur talinn í þessari deild; að svo komnu er eigi hægt á jarðfræðisuppdrætti að greina hinar nýrri myndanir hverja frá annarri. Lausagijótslög þessi eru að eðli sínu alveg eins á hálendi og láglendi, en ég hefi þó sett tvo liti, mest til þess á uppdrættinum að sýna aðalmismun hæðarinnar í landinu, Sandarnir, sem eru einkendir með sérstökum lit, eru myndaðir af

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.