Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Side 49

Eimreiðin - 01.05.1902, Side 49
129 ins og stöðu hans, orös og æðis, ímyndunar og virkileiks, slær mjög kýmilegum blæ á þessa frumherja hinnar ev.-lúth. kirkju. En mál þetta á líka mjög alvarlega hlið. fað er stórt lán, að hin danska þjóð er gædd þeirri náðargáfu, sem fljótt skilur það sem hlægilegt er. Og þeir eru margir, og fjölgar óðum, sem hlæja að þessum hálaunuðu píslarvottum ríkisins, að harðstjórum, sem láta eins og þeir væru þjáðir og þrælkaðir. En það er líka full ástæða til að mönnum gremjist, hvað þjóðinni er boðið, sem ofan á stjórnlegt gjörræði á nú að þola óvirðing í andlegum málum og þann ójafnað frá báðum flokkum, að láta ráðríkan minnihluta ráða lögum og lofum, enda býður hvor ójafnaðurinn öðrum heim, þar sem hvor er á annars bandi flokkanna. En öldungis víst er það, að andspænis »fámenna hópnum«, sem reynir til að halda í helgreipum öllu andans lífi í landi vo.ru, einkum hinu kirkjulega, stendur fjölmennur flokkur, allur þorri þjóðarintiar, sem finnur ekki framar, né fundið hefur nú í langan tíma fullnægju fyrir trúarþörf sína í kirkju meirihlutans, þjóðkirkj- unni. Eað sem ekki voru vitanleg ósannindi fyrir hálfri öld síðan, þegar ríkiskirkjan tók lýðfrelsisnafnið og nefndi sig þjóðkirkju, það er nú loksins komið vel í ljós og kemur betur og betur. Og jafnvíst sem það er, að vitanleg ósannindi eru skaðræði, ekki síður fyrir alla en hvern einstakan, eins víst er það, að enginn getur og enginn ætti, ef hann vill þjóð sinni vel, að umbera þegjandi þessa þjóð- lygi í kirkju vorri, og láta sér nægja einungis að ypta öxlum. Eví hvað sem persónulegri lífsskoðun líður, ætti hver skynsamur maður í mannfélaginu að krefjast þess, að þessari hræsnislygi sé hrundið, þar eð hún er sýnilegasta sóttnæmiskveykja gagnvart gjörvöllu þjóðfélaginu. Stórmikill meirihluti dönsku þjóðarinnar er fríhyggjufólk. I fjórar aldir hefur það verið mótmælendatrúar og haldið sér gegnum bæði 18. öldina og hina 19. Fólk þetta ber enganveginn litla lotn- ingu fyrir helgum hlutum, og hefur mikið af guðsótta í arf tekið —, en er samt í heild sinni, eins og hver önnur mótmælenda þjóð, skynsemistrúarleg. Pess er skylt að geta, að Grúndtvígs- stefnan, sem í broddi lífs síns var hinn gamli Lúthersdómur endur- vakinn, ásamt skoðun Grúndtvígs sjálfs í viðbót, hún hefur nú það eina erindi við æskulýðinn í þeim flokki og lýðháskólana, að brýna fyrir honum þýðingu frelsins og allra þjóðlegra og mannlegra hluta. En trúarlega skoðaður er æskulýður þessi fríhyggjandi, hvort sem hann 9

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.