Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Side 59

Eimreiðin - 01.05.1902, Side 59
139 Er það kirkjunni að kenna, þótt þú sért sjóndöpur, eða neitir eigi sjónarinnar? varð mér að orði. Já, presturinn gerði mig blinda. Hvernig þá? Eg skil ekki. — Blinda af sorg, svaraði hún. Við hvað áttu? spurði ég. Mér þótti presturinn tala fallega og af góðri tilfinningu. Já víst talaði hann fallega, alt of fallega. Hann talaði um, að við ættum að stofnsetja guðsríki á jörðunni og að við gæturn það, ef við værum trúaðir og góðir menn. Pá gæti guð — þá mundi Kristur taka sér bústað meðal vor — mitt á meðal vor. Systir mín þurkaði sér um augun. Já, þurfti þetta að valda þér sorgar? spurði ég. Petta eru líkingar, fagrar líkingar, sem hjartað skilur og tilfinningin — þegar þær koma frá hjarta og tilfinningu. Eg vil ekki hlusta á þessa menn, svaraði systir mín og sló frá sér með hendinni. Peim er ekki alvara. Betta er of fallegt, til þess að hafa í fíflskaparmálum og hræsnishjali. — Eg gladd- ist fyrst undir þessari fallegu ræðu og fór að gráta með ferm- ingarbörnunum. Ég varð barn í annað sinn, fermingarbarn, sem efinn hvarf frá, en trúin vitjaði aftur. — En svo kom einhver þytur að vanga mínum og ég heyrði rödd mæla þessum orðum: Honum er ekki alvara. Hann er að véla sálirnar, — hann, sem stökk upp á nef sér í fyrra, þegar vesalingurinn, barnamaðurinn, einyrkinn, hann Páll í Koti, færði honum leiguna, sem eitt pund vantaði upp á — eftir því sem sú freka vog sagði til þyngdar- innar. En börn Páls höfðu étið þurt í marga mánuði, til þess að leignasmjörið drægist saman. — Og nú fyrir þrem dögum, hafði hann ónot við Pétur í Gerði fyrir það, að einn landskuldargeml- ingurinn var léttari, en ákveðið er í byggingarbréfinu; þó voru hinir vænir. Ég þagði meðan systir mín lét dæluna ganga. Éá sagði ég þetta, er hún þagnaði: Éetta kann nú satt að vera. En gáðu að einu: Presturinn hlítur að fá bletti á sig í þessu óhreina mannfélagi. — Manstu ekki eftir smyrlinum og sólskríkjunni? — Fullkomið réttlæti er ekki hægt að finna né framkvæma á jarðríki — ekki fullkomið. Éví var hann þá að koma með Krist inn í þetta mál? spurði

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.