Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Qupperneq 68

Eimreiðin - 01.05.1902, Qupperneq 68
148. svo, að hann lét að lokum tilleiðast. Hún fór og eftir tvö ár var hann búinn að vinna sér inn nægilegt fé fyrir fargjaldi handa sjálfum sér, og hlakkaði nú heldur en ekki lítið til að hitta unnustuna. Hann kom og skjótt auga á hana á innflytjendahúsinu i Winnipeg; en svo virtist sem hún hefði fremur komið þangað fyrir forvitnis sakir, en til þess að taka á móti honum; því þegar hann ætlaði að heilsa henni,. tók hún til fótanna og hljóp af stað út í bæinn. Hann hljóp á eftir og náði henni. En hún varð þá svo grörn yfir því, ef einhver, sem þekti hana, kynni að sjá hana í fylgd með jafndurgslega klæddum manni og hann var í íslenzku ferðafötunum sínum, að hún bað hann að hafa sig sem skjótast á burtu, og hótaði að láta lögregluþjónana taka hann fastan, ef hann slepti sér ekki. Svo hljóp hún frá honum sína leið, en hann reikaði út á sléttuna fyrir utan bæinn með >vonirnar allar dauðar«,. fleygði sér þar niður og gret eins og barn. Þetta er aðalefnið í þessari sögu; en þá er minst sagt, því með- ferðin og lýsingin á þessu öllu er aðalatriðið. Hún er svo snildarleg, að um hana hefir hinn mesti gagnrýnishöfundur á Norðurlöndum, dr. Georg Brandes, sagt, að betur yrði ekki frá henni gengið. Þessi saga hefir sem sé verið prentuð áður og verið þýdd bæði á dönsku og þýzku, og öllum þótt mikið til hennar koma. Önnur sagan heitir »Litli-Hvammur« og hefir áður verið prentuð neðanmáls í ísafold. Efni hennar er í fám orðum þetta: 1 Stóra- Hvammi bjó efnaður ekkjumaður, sem hét Sveinbjörn; hann átti einn son upp kominn, Sigurgeir að nafni. í Litla-Hvammi bjó ekkja, sem hét Guðríður. Svo mátti heita að túnin lægju saman. Stóri-Hvammur var mesta kostajörð að öllu öðru en því, að slægjurnar vóru bæði litlar og reytingssamar. Litli-Hvammur var lítil jörð að víðáttu, en næstum eintómar engjar — rennislétt, kafloðið flæðiengi, þar sem grasið gekk í öldum. Það, sem Sveinbjörn langaði til mest af öllu, var að ná í Litla-Hvamm og hafa svo báðar jarðirnar undir. Hann reyndi með öllu móti að fá Guðríði til að selja sér jörðina, en hún var ófáanleg til þess. Svo tók hann það til bragðs, að biðja hennar, til að ná þannig yfirráðum yfir jörðinni, en fékk hryggbrot. En Guðriður réð honum til að fá fyrir ráðskonu unga myndarstúlku, sem hét Solveig og var dóttir bláfátæks manns þar f sveitinni, er átti fyrir mikilli fjöl- skyldu að sjá. Þetta varð að ráði og Sveinbirni líkaði svo vel við Sol- veigu, að hann afréð að eiga hana, hvort sem henni væri það Ijúft eða leitt. En henni var það alt annað en ljúft, því hún varð ástfangin í Sigurgeir, syni Sveinbjarnar, og þau hvort í öðru. Hún tók því þvert fyrir að giftast Sveinbirni, er hann bað hennar. En hann lét það ekki á sig fá. og hugsaði, að hann skyldi hafa sitt fram, hvað sem taut- aði. Hann átti töluvert hjá föður hennar, sem ekki gat borgað skuld sína, og honum hótaði hann nú að ganga svo hart að honum, að hann hlaut að fara á sveitina með alla sína fjölskyldu. Eina ráðið til að bjarga honum, var að Solveig léti að vilja Sveinbjarnar, og það afréð hún að lokum að gera, heldur en að steypa foreldrum sínum og syst- kinum í óhamingju, þótt hún yrði að fórnfæra sjálfri sér til þess. En þá skarst vinkona hennar, Guðríður gamla, í leikinn, og tókst að lok- um að vinna Sveinbjörn með því að selja honum Litla-Hvamm. Sigur-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.