Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Side 76

Eimreiðin - 01.05.1902, Side 76
'5ö FREYJA. IV, ii, Utgefandi: Margrét J. Benedictsson. Selkirk, Man. 1901. Fyrir eitthvað tveimur eða þremur árum var Eimr. sent eitt númer af »Freyju«, sjálfsagt í því skyni, að þess væri getið. En það númer var svo mikil ómynd, að vér hlífðumst við að geta um það. í því var t. d. ferðasögubull eftir ameríska konu, sem ferðast hafði heima á íslandi, er var svo fult af vitleysum og lokleysum, að oss var óskilj- anlegt, að nokkur íslendingur skyldi verða til þess að þýða það og gefa?;út á íslenzku — athugasemdalaust. Einnig að öðru leyti var þetta númer svo lélegt, að oss virtist engin þörf á, að vara menn við að halda lífinu í slíku blaði. Síðan höfum vér ekki séð »Freyju« fyr en nú, er oss hefir verið sent desembernúmer hennar 1901, og má af því sjá, að hún er nú orðin fjögra ára gömul. Það lítur því út fyrir að blaðið hafi tekið sér fram, því annars er oss óskiljanlegt, að það hefði verið sett á vetur svona hvað eftir annað. Það er líka sannast að segja, að sé »Freyja« að jafnaði álíka góð og þetta jólanúmer hennar, þá á hún rétt á að lifa. Reyndar er prentun þess töluvert ábótavant (letrið klest og óskýrt), en af innihald- inu eru kaupendurnir fullsæmdir. Þar eru kvæði eftir Stephán G. Stephánsson, S. J. Jóhannesson, Sig. Júl. Jóhannesson, B. þórarinsson og Helgu Baldvinsdóttur og öll dágóð —- og sum fram yfir það, t. d. kvæðin eftir St. G. St. Kvæðið »Kjallaraplantan« er líka alleinkenni- legt kvæði og merkilega snoturt bæði að hugsun og búningi. Pá er dálítil jólasaga »Föðurlausa stúlkan« eftir G. A. Dahlmann, kafli úr þýddri sögu (»Karmel njósnari«) og enn önnur jólasaga (»Barnakró«). Fremst í heftinu er svo nýtt sönglag eftir Gunnstein Eyjólfsson, og auk þess blað með myndum af 5 Vestur-íslendingum, fjórum karl- mönnum og einni konu. (Gunnsteinn Eyjólfsson, St. G. Stephánsson, Helga Baldvinsdóttir, S. J. Jóhannesson og G. A. Dalmann). Eins og af þessu má sjá, er efnið allmargbreytt og í alla staði vel frambæri- legt. Það gleður oss að sjá þessa framför frá því, sem vér höfum áður séð af »Freyju«, og vér vonum og óskum, að hún sé ekki lak- ari allan ársins hring en þetta eina númer. ALMANAK 1902. VIII. ár. Utgefandi: Ólafur S. Thorgeirs- son. Winnipeg 1901. Auk tlmatalsins er í þessum árgangi áframhald al safni til landnámssögu íslendinga í Vesturheimi, og er sá kaflinn, er hér birtist um landnám íslendinga í Norður-Dakóta, eftir prófessor séra Fribrik Bergmann. Er saga hans í 36 kapítulum og prýðisvel sögð og miklu betur en nokkur hinna fyrri kafla, því hér er skýrt frá ö 11- um hliðum frumbýlingslífsins og það svo ljóst og skilmerkilega, að jafnvel bráðókunnugum mönnum hlýtur að skiljast alt vel (t. d. sveita- stjórnarfyrirkomulagið og fleira, sem menn heima á Islandi gætu ekki skilið skýringalaust). Auk þess er framsetningin einkar lipur og hugð- næm. Eftir sama höfund eru og í almanakinu æfiágrip tveggja nýdá- inni landnámsmanna, J. P. Hallssonar og J. Bergmanns, með góðum myndum af þeim. Þá er stutt ritgerð um Brasiliuferðir f’ingeyinga, eftir Jón Borgjiriing á Akureyri, og að lokum ýmsar smágreinar, og helztu viðburðir og mannalát meðal íslendinga í Vesturheimi. Frá- gangurinn á almanakinu er hinn vandaðasti.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.