Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 2
i58
Það var víst Einar Benediktsson, sem fyrstur skýrði þetta mát
skilmerkilega fyrir íslendingum og benti á greinarmuninn á flaggi
og merki; var það árið 1897d) Og svo fór það loksins, að ráð-
herra Islands, Peter Adler Alberti, af sjálfsdáðum og sjálfsagt til
að geðjast íslendingum, fékk samþykki konungs til þess, að breyta
skjaldmerki Islands, og með auglýsingu 3. okt. 1903 var það gert
heyrinkunnugt, að það skyldi vera hvíturfálki (silfur-fálki) í blaum feldi
(1. mynd). En þó tilgangurinn væri góður, var framkvæmdin slæm.
Alberti hafði víst viðlíka mikið vit á skjaldmerkjafræði og íslending-
ar sjálfir, og án þess að leita
aðstoðar eða ráða nokkurs
fræðimanns í þeirri grein,
sendi hann dráttlistarmann
upp á náttúrugripasafn há-
skólans, lét hann gera mynd
af úttroðnum íslenzkum fálka,
sem þar var, og löggilti svo
þá mynd sem skjaldmerki
Islands. Svona gekk nú sag-
an í Höfn um þær mundir,
og sel ég hana ekki dýrara
en ég keypti; en hún mun
víst ekki fjarri sanni. Og nú
hefir skjalavörður A. Thiset
í grein, sem síðar skal vik-
1. Fálka-skjalclmerkið frá 1903. a^, g^fið frekari upplýs-
ingar um sköpun skjald-
merkisins. Eftir að myndin
hafði náð samþykki konungs, var Thiset sýnd hún, því að hann
er sérfræðingur í þessum efn'um. Benti hann þá á, að það ætti
illa við, að fálkinn væri til vinstri,* 2) því þegar merkið væri sett í
skjaldmerkið danska, stæði fálkinn þar andvígur grænlenzka birn-
inum og færeysku kindinni og öllum hinum dýrunum í merkinu;.
þótti það ekki líta friðsamlega út. Var þessu þá breytt af hinu
‘) Dagskrá 13. marz 1897. Sbr. ritgerð Jóns Jónssonar í skýrslu P'ánaneind-
arinnar 1914.
2) Hægri og vinstri í skjaldmerkjafræðinni er ætíð miðað við skjöldinn eða.
skjaldberann, en ekki áhorfandann.