Eimreiðin - 01.09.1916, Page 40
196
ingar. Þeim er oftast í sjálfsvald sett, hve mikið þeir vilja greiða
í árstillag, en lágmarkið er 2 kr. á ári. Pessir félagsmenn hafa
atkvæðisrétt á fundum, og njóta sömuleiðis þeirra mikilvægu rétt-
inda, að geta orðið njótandi félagar seinna í lífinu, ef efnahagur
þeirra verður verri, þótt þeir þá séu komnir yfir fertugt og þótt
heilsufari þeirra sé nokkuð ábótavant. Petta atriði er mjög mikils
vert, og íslenzk sjúkrasamlög mega ekki gleyma að hafa þetta á-
kvæði í lögum sínum, því oftast eru það þeir, sem á efri aldur
eru hnignir, er mestrar hjálpar við þurfa.
Markmiðsjúkrasamlaganna erfyrst og fremst,
að t r y ggj a e fn alí t i ð fó lk gegn sjúkdómum og af-
leiðingum þeirra, bæði með ókeypis læknishjálp
og fjárstyrk. Pað eru því aðallega verkamenn og iðnaðar-
menn og þeir, sem í efnalegu tilliti standa þeim jafnhliða, er rétt
hafa til upptöku í ríkisviðurkend sjúkrasamlög. En þó geta einnig
menn af efnaðri stéttum orðið félagsmenn í þeim með því skilyrði,
að þeir greiði hærri tillög, og að minstá kosti svo há, að ríkissjóð-
ur engan kostnað hafi af þeim. Þeir verða því að svara aukatillagi
til samlagsins, er að minsta kosti samsvari þeirri upphæð, er fé-
lagið fær fyrir hvern félaga úr ríkissjóði.
Ef vafi leikur á, hvort sá, er sækir um upptöku í sjúkrasam-
lag, sé í efnalegu tilliti hæfur til að njóta fullra almennra réttinda,
og sjúkrasamlagið hafi heimtingu á að fá styrk fyrir hann úr rík-
issjóði, er nefnd kosin, til að skera úr því. I henni eiga þrír menn
sæti: Einn kosinn af sveitar-eða bæjarstjórn, annar úr stjórn sjúkra-
samlagsins og þriðji læknir þess, er sveitar- eða bæjarstjórnin kýs.
Allir hlutaðeigendur geta snúið sér til nefndar þessarar.
Félagsmenn njóta fyrst fullra réttinda 6 vikum eftir að þeir
fengu upptöku í samlagið. IJó fá þeir jafnharðan hjálp, ef slys
hefir valdið sjúkdómi þeirra og verkfalli. Konur njóta fyrst dag-
styrks fyrir barnsburð 10 mánuðum eftir inngöngu í samlagið.
Réttindi njótandi félagsmanna í ríkisviðurkendu
sjúkrasamlögunum eru þá þau, sem nú skal greina:
Sjúkrasamlögin borga, félagsmönnum að kostnaðarlausu, alla
læknishjálp fyrir þá sjálfa, börn þeirra og fósturbörn, sem eru
yngri en 15 ára. En hver félagi verður að snúa sér til þess
læknis, er hann hefir kosið að leita læknishjálpar hjá það árið.
Menn hafa sem sé aðeins rétt til að skifta um lækni einu sinni á
ári, þ. e. a. s. 1. jan. ár hvert, í þeim sjúkrasamíögum, sem hafa