Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 68
224 slíka snillinga á skautum. Menn og meyjar dönsuðu á skautun- um fagra dansa í takt við hljóðfæraslátt stórrar sveitar, og salur- inn endurómaði af hinu ágæta samspili allskonar hljóðfæra. Dans- inn varð enn glæsilegri fyrir það, að dansendur voru skrýddir allavega skrautlegum búningum, en rauðleit, bláleit og gulleit raf- ljós slógu marglitum norðurljósabjarma yfir svellið. Mér fanst ég vera í álfheimum >og hoppa álfar hjarni á, svo heyrist dun í fellumc. Milli sýninganna var hlé, og máttu þá áhorfendur þeir, sem vildu, stíga niður á svellið og reyna sig á skautum, því skautar fengust þar léðir fyrir lágt verð. Var ég hissa, hve margir komu þar fram á sjónarsviðið, af fólki eins og fólk er flest, sem reyndust hinir fimustu á skautunum. Karlar og konur af ýmsum stéttum og aldri sýndu þarna skautafimi sína, og einkum tók ég eftir mörg- um hermönnum, bæði yfirmönnum og óbreyttum dátum, sem öfl- uðu sér lófaklapps áhorfenda fyrir frækni og lipurð á skautunum. En hér var margt fleira að sjá en skautafólkið. Um allar svalirnar var »setinn Svarfaðardalur* af konum og körlum, skraut- klæddum og í góðu skapi, er átu og drukku og nutu alls fagn- aðar. Hér var eins og alstaðar annarstaðar sægur af hermönnum, einkum lautinöntum og öðrum yfirmönnum. Hér sátu þeir og glöddust við veigar og sprund — »mellem Slagene« — nýkomn- ir heim eða í þann veginn að leggja aftur upp út í elds- og kúlnahríð á vígvöllunum. Og allir virtust þeir á eitt sáttir um að nota tímann vel og teiga munaðinn, meðan hann væri að fá. Margir þessir foringjar voru prýddir ýmsum orðuböndum, til merkis um fengin heiðursmerki fyrir unnin afrek. Stúlkurnar gáfu þeim hýrt auga, ekki sízt þeim, sem höfðu svartröndótt band í hnepsl- unni vinstra megin á frakkanum; en það var járn-kross-bandið. »Eigi leyna augu, ef ann kona manni,« segir í Gunnlaugs sögu ormstungu. Svo var að sjá, sem þessir riddarar járnkrossins hefðu mesta kvennhyllina. Hér voru þeir staddir í skotsal ásta- guðsins, og var þægileg tilbreytni að vera horfinn hingað burt úr »svælu og reyk og svæsnum hildarleik«; en hér voru margar konur og fagrar og sumar ástleitnar vel. Kunnu þeir auðsjáan- lega vel við sig á þessum vígvelli, þar sem ekki skeði annað ægilegra, en að menn og konur féllu í freistni, og ekki varð annað að meini, en að ungar stúlkur urðu s k o t n a r.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.