Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 41
197
fastan samning við lækni eða lækna þess, eins og vanalega á sér
stað í öllum bæjum og stærri þorpum í Danmörku, svo sem síð-
ar mun getið. Ef félagsmaður leitar annars læknis, verður hann
sjálfur að borga kostuaðinn, ef hann getur ekki sannað, að mikil
hætta hafi verið á ferðum; en geti hann það, og sömuleiðis hafi
verið svo ástatt, að hann hafi ekki náð í sinn eigin lækni, hann
hafi haft forföll, þá borgar samlagið einnig þennan aukakostnað.
Sjúkrasamlögin borga vist félaga sinna á sjúkrahúsum og
sömuleiðis fyrir aðgerðir (óperatiónir), þó aðeins að hálfu, en hið
opinbera, ríkis- og sveitarsjóðir, hinn helminginn. Félagsmenn
verða þó altaf að fá skriflegt vottorð frá lækni um, að sjúkrahús-
vist þeirra sé nauðsynleg, og sömuleiðis verða þeir að snúa sér
til stjórnar samlagsins og fá leyfi hennar og tryggingu hjá henni
fyrir borgun spítalavistarinnar.
Fyrir upptöku og vist á geðveikrastofnunum og heilsuhælum
borga samlögin fyrir meðlimi sína þann hluta gjaldsins, er ríkis-
sjóður ekki greiðir, en það er aðeins */* hluti kostnaðarins á
heilsuhælunum.
Sjúkrasamlögin veita félögum sínum hærri eða lægri fjárstyrk
dag hvern (dagstyrk) meðan á sjúkdómi þeirra stendur og þeir
eru ófærir til vinnu. Upphæð styrksins er vanalegast 70 aurar á
dag, ef ekki er öðruvísi ákveðið og um samið. Pó geta menn
með því að borga hærri tillög trygt sér hærri dagstyrk. Styrkinn
verða félagsmenn sjálfir að heimta hjá stjórninni, og verða fyrst
að snúa sér til formanns, en fá hann greiddan hjá gjaldkera. Ef
einhver félagslimur krefst ekki dagstyrksins í síðasta lagi einum
mánuði eftir að veikindi hans byrjuðu, missir hann allan rétt til
þessarar hjálpar frá félaginu.
Sjúkrasamlögin borga helming þess gjalds, er bönd, gervilim-
ir og sáraumbúðir til félagsmanna kosta, þó aðeins eftir læknis-
vottorði og eftir að stjórnin hefir fjallað um málið á stjórnar-
futidi.
Meðan á sjúkrahús- eða spítalavist stendur, fá félagsmenn
ekki nema 30 aura styrk á dag frá sjúkrasamlaginu.
Jafnskjótt og sjúklingurinn er aftur vinnufær, fellur fjárstyrk-
urinn niður, og allan þann tíma, er hann nýtur fjárstyrks frá
sjúkrasamlaginu, má hann alls ekki ganga að neinu starfi og ekki
fara að heiman án leyfis læknis og stjórnarinnar.
Pótt báðir foreldrar séu eigi félagar í sjúkrasamlagi, en aðeins