Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 67
223
»Svo giatt er leikið af gripfimum drengjum,
að gneistar kvikna á fiðlunnár þvengjum.«
Peim unaði, að hlusta á slíkt samspil og söng, verður ekki með
orðum lýst, en Einar Benediktsson kemst næst því í ágæta kvæð-
inu »Dísarhöll«.
Ishöllin. Margháttaðar eru skemtanirnar í stórbæjunum fyr-
ir þá, sem vilja skemta sér og ráð hafa á. Auk hinna eiginlegu
leikhúsa er nú alstaðar kominn fjöldi af kvikmyndaleikhúsum, og
sum þeirra mjög skrautleg og mikilfengleg í Berlín; en auk þessa
eru ýmsir staðir með fjölbreyttum skemtunum, eins og »Cirkus«,
»Winterpalast« o. fl.
Sérstakur gleðistaður í sinni röð er »Das Eispalast« eða ís-
höllin, og vil ég ráða þeim, sem til Berlínar koma, að fara þang-
að; því þar er ódýrt að vera, þegar tillit er tekið til, hve skemt-
unin er margbreytt.
íshöllin er stórhýsi mikið og skrautlegt, og er þar feiknastór
salur og háræfraður. Meirihluti gólfsins er svell, ágætt, rennslétt
skautasvell. Vatni hefir verið veitt yfir gólfið, en fyrir áhrif risa-
vaxinna frystivéla undir gólfinu frýs vatnið, og dregur höllin nafn
sitt af þessum skautaís. Hér er hægt að hafa skautasvell jafnt
sumar sem velur, og staðurinn fjölsóttur af skautamönnum, sem
geta fengið fyrir lítið verð að iðka þá fögru og hollu íþrótt.
Pykja það ekki lítil þægindi, að geta hvarflað hingað stundum á
sumrin, þegar hitar miklir ganga, því þá er hér svalandi að koma
úr svækjuhitanum úti.
Hringinn í kringum svellið, sém er á að gizka tvær vallar-
dagsláttur að víðáttu, eru tvennar loftsvalir, hvor upp af annarri.
Á svölunum eru bekkir og borð, og sitja þar áhorfendur og geta
fengið þann beina, er þeir óska, því veitingar eru nógar, bæðj
matur og drykkur af öllu tægi. Settist ég þar ásamt kunningja
mínum á lægri svölunum, til að horfa á skautafólkið og snæða
kveldverð um leið. Á svellið kom nú fram hver hópurinn á fæt-
ur öðrum af listfengum skautamönnum. Pví eru ekki þessir menn
í striðinu? hugsaði ég. Pjóðverjar sýnast ekki enn að þrotum
komnir að mannafla, úr því þessum leyfist að skemta sér og öðr-
um á skautum. En ef til vill hafa ýmsir af þeim verið útlending-
ar. Ungar og fríðar skautfimar stúlkur prýddu hópana. Og hér
mátti sjá marga renna sér fimlega, og hefi ég aldrei áður séð
5