Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 48
204
SJÚKRASAMLÖG Á ÍSLANDI.
I stuttu máli hefi ég þá reynt að lýsa starfsemi og fyrir-
komulagi sjúkrasamlaganna í Danmörku í öllum höfuðatriðum.
Aðaláform mitt hefir verið, að benda mönnum á nytsemi þessara
stofnana, nytsemi, sem bæði land og lýður, aldir og óbornir,
njóta gott af. Ef þessi litla ritgjörð gæti vakið áhuga manna á
íslandi til að stofna sjúkrasamlög, þá er tilgangi mínum náð.
Mér er nú ekki fullkunnugt um, hve mörg sjúkrasamlög eru til,
eða hafa verið sett á stofn, á Islandi; en veit, að þau eru sárfá
og fámenn. Áhugann vantar enn þá hjá þjóðinni, og einkum hjá
stjórninni, þrátt fyrir ötula framsókn Guðmundar landlæknis Björns-
sonar og fleiri annarra, sem bæði í ræðu og riti hafa starfað að
framkvæmd þessa mikilvæga málefnis.
Ég hefi nú íhugað málið á marga vegu, og ég get ekki bet-
ur séð, en að sjúkrasamlög muni geta þrifist um land alt, ef rétt
er á stað farið, og ef landsstjórnin vill styðja þetta nauðsynjamál,
sem ég tel sjálfsagt, þegar félögin fyrst eru komin á fót.
Pað er nauðsynlegt að íhuga allar kringumstæður, þegar um
það er að ræða, að stofnsetja sjúkrasamlög. Pað þarf að reikna
öll útgjöld út nákvæmlega, þarf að taka tillit til alls þess kostn-
aðar, sem hugsanlegur er; en þetta er mjög erfitt að gera í
byrjun, áður en nokkur reynsla er fengin. Éað verður því helzt
að gera kostnaðaráætlunina ríflega í byrjun. Ef svo seinna er
hægt að lækka gjöldin, þá er það ágætt. Éað er langtum betra
að þröngva heldur um réttindi félagsmanna í fyrstu og gera til-
lögin ríflegri. Pað munar engan um að greiða 25—50 aurum hærra
eða lægra gjald á mánuði, en sjúkrasamlagið munar um þessar
smáupphæðir, því margt smátt gerir eitt stórt. Fleiri aðrar ráð-
stafanir er og hægt að gera, til þess að tryggja samlögin að
nokkru í efnalegu tilliti. Fyrst og fremst það, að félagsmönnum
sé innrætt að sækja ekki lækni eða leita læknishjálpar að óþörfu;
en það er oft hætt við, að félagið verði misbrúkað þannig af
sumum, því að altaf er misjafn sauður í mörgu fé. Sumir hugsa
sem svo: Ég þarf ekki að horfa í kostnaðinn við að leita mér
og mínum læknishjálpar, því að sjúkrasamlagið greiðir hann, og
þar sem ég geld tillög mín, á ég og heimtingu á öllum þeim rétt-
indum, sem ákveðin eru í lögunum. En þetta er slæmur hugs-
unarháttur, og leiðir oft til, að sjúkrasamlögiti fara á hausinn,