Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 76

Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 76
232 EGGERT BRIEM: UM HARALD HÁRFAGRA. Frásagnir Heimskringlu og annarra fornrita vorra. Rvík 1915. Þetta er allmikið rit, nál. 10 arkir í stóru broti, og mun höf. hafa gefið það út á eigin kostnað. Er það nýlunda, er um slíkt rit er að ræða, er ekki má vænta neinnar verulegrar sölu á, allrasízt svo, að nokkur hagnaður verði af útgáfunni, heldur þvert á móti stórtap. En ekki er það síður nýlunda nú um stundir, að sjá slíkt rit frá hendi manns. sem annars hefir mest fengist við búnað og búfræði, þótt til hafi verið menn fyr á öldum á íslandi, sem ekki létu sér svipað fyrir brjósti brenna. En slíkt mun þó alveg sérkennilegt fyrir íslendinga, eins og fleira, er að bókmentastörfum lýtur. Þó er hér um meira að ræða en þá almennu sagnaritun, sem margir íslendingar hafa verið svo leiknir í, því þetta rit er fullkomið vísindarit, sem ber bæði vott um mikinn skarpleika og óvenjulega rannsóknarþrá. Eins og kunnugt er, hafa ýmsir útlendir fræðimenn, aðallega norsk- ir sagnfræðingar, ritað allmikið um Harald hárfagra og þær miklu bylt- ingar, er urðu í landsstjórn og á högum manna, er Haraldur braut all- an Noreg undir sig og gerðist þar einvaldskonungur. Hafa þeir lítt vilj- að hlíta frásögn Snorra og annarra íslenzkra sagnaritara um þá viðburði, heldur mjög borið brigður á trúverðugleik þeirra, og viljað skýra þetta á annan veg, sem þeim þykir meiri líkindi til. En E. Br. tekur sér hér fyrir hendur að rannsaka á ný þessar ritningar allar, og sýna fram á, að fræðikenningar þessara manna séu ýmist bygðar á misskilningi á forn- ritum vorum eða algerlega í lausu lofti og því helber heilaspuni. Og hon- um tekst þetta yfirleitt svo vel, að ekki er sýnilegt annað, en að skýr- ingar hans muni velli halda gegn vefengingum og kenningum hinna norsku fræðimanna, sem þó sannarlega eru engar liðleskjur, heldur stórmerkir vísindamenn, þó þeim hafi sýnilega skjátlast í þessum greinum. Vér fá- um ekki betur séð, en að skýringar höf. á »Haraldsrétti« (sem hann svo kallar) og á orðinu »óðal« séu yfirleitt sennilegar og betri en nokkuð annað, sem enn hefir verið um þetta ritað. Og athuganir hans og ástæð- ur eru víða hvar svo skarplegar,' að meira þarf en getgátur einar og heilaspuna til að hrinda þeim af stóli. — Aftur eru sumir aukakaflar, eins og t. d. kaflinn um ísland, meira athugaverðir, og þar ýmsar ó- rökstuddar staðhæfingar. Hér er svo myndarlega tekið svari hinna fornu sagnaritara vorra, og þá einkum hins frægasta þeirra: Snorra Sturlusonar, að ritgerðin hefði að vísu átt að hljóta verðlaun úr sjóði Jóns Sigurðssonar — jafn- vel fremur en nokkur önnur ritgerð, sem hingað til hefir verðlaun hlotið úr þeim sjóði. Því ekkert getur verið í betra samræmi við tilgang þess sjóðs, en vel samin vörn fyrir sagnáritun íslendinga. Hér ætti ekki að koma til greina, hvort nefndin er samdóma höf. eða ekki um einstök atriði. t’að kemur ekki málinu við, ef ritgerðin er vísindalega samin, eins og hún óneitanlega er. Slík misbeiting á umboði því, sem alþingi hefir falið nefndinni, má ekki eiga sér stað óátalin. V. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.