Eimreiðin - 01.09.1916, Page 12
mikla áherzlu á hana. Pessum skilyrðum hefir því miður ekki
verið fullnægt við löggildingu fálkamerkisins. Fuglinn er eins og
hin úttroðna fyrirmynd hans á náttúrgripasafninu. Og svo er hitt,
að hann sem merki á enga verulega sögu að baki sér. Það var víst
Sigurður Guðmundsson málari, sem fyrstur manna stakk upp á
þessu merki, og virðist það að vísu hafa haft nokkuð fylgi heima
á Islandi, þótt það fylgi hafi samt verið dreift og óákveðið. En
hverja skoðun, sem menn annars hafa um skjaldmerkið gamla og
hið nýja, verður því ekki neitað, að það var gerræði af ráðherr-
anum fyrir ísland og stjórnarskrifstofunni í Kaupmannahöfn, að
breyta skjaldmerkinu án þess að leita álits íslendinga um það.
Málið hafði legið niðri á íslandi um hríð, og óskir landsmanna
um merkið voru óvissar á þeim tíma, sem breytingin var gerð.
En til hvers er annars að leita álits þjóð-
arinnar? Pað verður vanalega til þess, að
menn hlaupa í hárið hver á öðrum, og
hvert smáræði er gert að pólitísku kapps-
máli.
Pví hefir verið haldið fram, að Loft-
ur ríki Guttormsson á Möðruvöllum, og
Svalbarðsættin eftir hann liðinn, hafi haft
hvítan fálka í bláum feldi að skjaldmerki.
Um Loft er víst, að svo var ekki; hann
hafði ekki einu sinni fálka í innsigli sínu,
heldur orm eða slöngu (9. mynd). Svalbarðsættin hafði víst ekk-
ert skjaldmerki; engir voru aðlaðir af þeirri ætt. Hins vegar
höfðu margir íslendingar fálka í innsigli sínu fyr á tímum. Pann-
ig segir Thiset, að af innsiglunum við hyllingarbréf íslendinga til
handa Eiríki af Pommern árið 1419 séu ekki færri en fimm, sem
hafa fálka, nefnilega Hallur Ólafsson, Ólafur Jónsson (10. mynd),
Árni Einarsson, Brynjólfur Steinrauðarson og Sigmundur Oddsson.
Eftir þessu hefir fálkinn ekki verið merki neinnar sérstakrar ætt-
ar, því að ekki er það vitanlegt, að þessir menn hafi verið af
sömu ætt eða neitt skyldir. Hér kemur einungis það sama fyrir,
sem algengt var í öðrum löndum, að menn settu ránfugl í skjöld
sinn eða innsigli, en nú var fálkinn algengasti og þektasti ránfugl
á íslandi, og því eðlilegt, að íslendingar tækju hann sérstaklega.
En innsigli sitt hefir Loftur ríki óefað erft eftir föður sinn, og
kemur þar fram hin reglan, .er ég fyr gat um, að setja það í
8. Innsigli íslands 1593.