Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 26

Eimreiðin - 01.09.1916, Blaðsíða 26
182 -stjörnu, Alfa Kentauri, er aðeins talið 0,75 sekúndu, 61 í Álftar- merki, sem þeir Bessel mældu, 0,48 sekúndu, Siríus 0,37, Leiðar- stjarnan 0,07 o. s. frv. Þessi mælingaraðferð er ákaflega örðug og verður að taka tillit til og hafa hliðsjón af mörgu, hreyfingum jarðar, hreyfing sólar í geimnum, geislabroti, hita og raka o. fl.; verður því vel að gæta sín, svo ekki komi rugl í reikningana. Nú nota stjörnufræðingar oftast aðra aðferð; þeir mæla millibil milli tveggja stjarna, sem sýnast nálægar hvor annarri og hefir önnur mikla hreyfingu í géimnum, en hin enga sjáanlega. Pó stjörnurnar séu alment kallaðar fastastjörnur, þá er það ekki rétt- nefni; þó þær sýnist óbifandi frá samastað sínum árið um kring, má við mjög nána athugun sjá, að sumar þeirra mjakast þó dá- h'tið til á himninum. Sá, sem fyrstur athugaði þetta, var enskur stjömufræðingur, Edmund Halley að nafni (f. 1656, d. 1724); hann fann, að ýmsar stjörnur, er Hipparkos1) hafði ákveðið 130 árum f. Kr., höfðu fært sig úr stað, og síðan hefir þessi staðbreyting stjarna verið nákvæmlega mæld. Á einstöku stjörnum má athuga hreyfingu ár frá ári, þó lítil sé, en hreyfing sumra er ekki sýni- leg, fyr en eftir 40—50 ár, og flestar hafa ekkert breytt stöðu sinni á þeim tíma, sem þær hafa verið athugaðar; en það er ekki af öðru en því, að þær eru svo langt í burtu, að hreyfing þeirra sést ekki. Mesta stjömuhreyfing, sem mæld hefir verið, er 7 sekúndur á ári, en margar stjörnur þurfa 20, 50 eða jafnvel 100 ár til svo örlítillar staðbreytingar á himninum. Fyrst héldu menn, að björtustu stjörnurnar mundu hafa fljótasta hreyfingu, af því menn ætluðu, að þær væru næstar; en það kom fljótt í ljós, að svo er eigi; sumar þeirra hafa alls ekki færst úr stað, síðan lega þeirra fyrst var ákveðin, en litlar og daufar stjörnur eru oft fljót- ar í hreyfingu tiltölulega, og sú, sem fljótust er, telst undir 7. stjörnuflokk. Það er alkunnugt, að hreyfing hluta, sem eru langt í burtu, sést ekki í fljótu bragði. Pað verður að athuga allná- kvæmlega nokkra stund, áður en hægt er að skera úr, hvort maður á fjallgarði langt í burtu stendur kyr eða er á gangi; eins sést hreyfing á gufuskipi við sjóndeildarhringinn örðuglega frá ströndu, fyr en eftir dálitla stund, ef ekki er hægt að miða við x) Hipparkos, faðir hinnar vísindalegu stjörnufræði, var fæddur 190 f. Kr. í Níkæu í Bíþyníu, og dó 125 f. Kr. á Rhodos. Hipparkos var einn hinn mesti spekingur og snillingur, sem nokkurntíma hefir verið til.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.