Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Qupperneq 34

Eimreiðin - 01.09.1916, Qupperneq 34
sólkerfi eru bygð á svipaðan hátt og sólkerfi vort, þó ekki hafi enn tekist að ná í hinar smærri plánetur. Eins og vér fyr gát- um, hafa með því verkfæri meðal fastastjarna fundist allmargar tvístjörnur, sem ganga hvor í kringum aðra eða snúast um sam- eiginlega þungamiðju; en slík sólkerfi eru að mörgu leyti ólík voru sólkerfi; því jarðstjörnur þær, sem þar hafa fundist, eru af- arstórar og slaga hátt upp í aðalsólina; af því skapast alt annað eðli og háttalag í þeim sólheimum. Stjörnufræðingar þekkja nú orðið mikinn fjölda af tví- stjörnum, sem eru dreifðar um alla himinhvelfinguna; yfir 14 þúsundir þeirra hafa verið skrásettar, og þeim fjölgar á hverju ári.1) Tvístjörnur eru mjög mismunandi fjarlægar hvor annarri, en umferðartími þeirra stjarna, sem hægt hefir verið að greina sundur í sjónpípum, er oftast langur, nokkur ár í minsta lagir eins og hjá hinum ytri plánetum í voru sólkerfi, en stundum getur hann líka verið heilar aldir eða jafnvel þúsundir ára. Hnettirnir í tvístjörnukerfunum eru ýmist jafnstórar sólir, sem snúast um sameiginlega þungamiðju, eða þá reikistjörnur, sem eingöngu aðgreinast frá plánetum í voru sólkerfi við hina sjátf- stæðu birtu þeirra; reikistjörnur þessara sólkerfa eru ekki ennþá kólnaðar og orðnar dimmar. Til forna hefir sól vor eflaust líka verið tvístjarna, meðan Júpíter enn var svo heitur, að hann var lýsandi;2) en þar á undan hefir sólin verið margföld stjarnar meðan hinar reikistjörnurnar ennþá voru sjálfbjartar. þess hefir áður verið getið, að litsjáin hefir leitt í ljós ýrnsar stjörnusamstæður, sem eigi er hægt að greina sundur með sjón- pípum, sumpart af því hnettirnir eru svo nálægir hver öðrum, sumpart af því þeir eru kólnaðir og orðnir dimmir. Sumar af þessum aukastjörnum hafa mjög stuttan umferðartíma, af því þær eru svo nálægar aðalsólinni og fara því mjög hart. Litsjáin hefir t. d. sýnt, að björt stjarna í Meyjarmerki, sem kölluð er Spíka, er tvístirni; félagsstjarnan er ósýnileg og fer kringum aðalsólina Hér munum vér aðeins stuttlega minnast á tvístjörnur, því um þær hefir nýlega staðið grein í »Skírni« (1905, bls. 238—249) eftir Sir Robert Ball, sem Magnús Stephensen þýddi. Hér setjum vér aðeins nokkra viðauka við þá grein, en vísum annars þangað. 2) Jupíter mun varla fullkólnaður enn, því menn þykjast enn verða varir vi6 miklar byltingar og breytingar á yfirborði þessarar jarðstjörnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.